Viðauki IV
- grein
Minningar- og Afrekssjóður Guðmundar Arasonar
Reglugerð um Ægisskjöldinn
Ægisskjöldurinn er æðsta viðurkenning, sem Sundfélagið Ægir veitir
sundfólki úr sínum röðum fyrir hvert keppnistímabil. Viðurkenning þessi er veitt í
minningu Ara Guðmundssonar, fyrrum formanns Ægis. - grein
Ægisskjöldurinn er í tveim eintökum og skal veittur sem farandgripur
að hausti ár hvert þeim sundmanni í karlaflokki félagsins og þeirri sundkonu úr
kvennaflokki, sem þykja hafa verðskuldað titilinn “besti sundmaður Ægis” á nýliðnu
keppnistímabili. Einnig skal veittur verðlaunapeningur eða bikar til eignar af sama
tilefni. - grein
Stjórn Ægis skipar dómnefnd, sem velur verðlaunahafa. Skal
dómnefndin skipuð fyrir 1. maí ár hvert. Formaður nefndarinnar skal hafa víðtæka
þekkingu á sundíþróttinni. Auk hans skulu sitja í nefndinni fulltrúi tilnefndur af
fjölskyldu Ara Guðmundssonar og yfirþjálfari félagsins. - grein
Við val á verðlaunahöfum skal nefndin hafa til hliðsjónar alla þá kosti,
sem góðan sundmann mega prýða svo sem afrek í keppni, verðlaun sem unnið er til,
þátttöku í stórmótum, frammistöðu á sundmótum almennt, áunnin stig skv.
viðurkenndum stigakerfum, framfarir og ástundun á keppnistímabilinu, framkomu í
keppni og fordæmi til annars sundfólks. - grein
Við ákvörðun nefndarinnar ræður einfaldur meirihluti. Nefndin skal
skila niðurstöðu sinni til stjórnar Sf. Ægis fyrir 1. september ár hvert. Nefndin
tilnefnir þann eða þau, sem afhenda Ægisskildina hverju sinni. - grein
Afrekssjóður til minningar um Ara Guðmundsson skal vera starfandi
og úr honum ber að veita fé til þeirra afreksverkefna sem íþróttafólk Ægis tekur þátt í
hverju sinni. Stjórn félagsins leggur áætlun um verkefni fyrir stjórn sjóðsins og skal
hún taka ákvörðun um úthlutun til verkefna og einstaklinga tvisvar á ári, við upphaf
sundárs og í framhaldi af Innanhúsmeistarmóti Íslands í mars. - grein
Við val á einstökum styrkhöfum skal nefndin hafa til hliðsjónar sömu
atriði og í 4. grein, en við við úthlutun á styrk til einstakra verkefna skal nefndin ætíð
hafa hagsmuni félagsins að leiðarljósi og framtíðarhagsmuni sundhópsins. - grein
Stjórn Sf Ægis leggur sjóðunum til höfuðstól og gætir þess að í hann
safnist nægjanlegt fé til úthlutunar. Óheimilt er að úthluta fé úr sjóðnum sem ekki er
sannanlega fyrir hendi. Gjaldkeri Sf Ægis skal hafa fjármálalega umsýslu með
sjóðnum.
Upplýsingar um Ægisskjöldinn
Ari Guðmundsson, fyrrum formaður Ægis og ÍBR um árabil gerði Ægisskjöldinn
eigin höndum og skar hann út í tré af miklum hagleik. Tvö eintök gerði hann af
skildinum og færði félaginu að gjöf vorið 2003. Við það tækifæri lagði Ari í hendur
stjórnar félagsins að semja reglur um afhendingu þessara veglegu verðlaunagripa.