LÖG FYRIR SUNDFÉLAGIÐ ÆGI
Stofnað 1. maí 1927
Staðfest á Aðalfundi 26. apríl 2016.
- grein
Félagið heitir Sundfélagið Ægir. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík. - grein
Tilgangur og markmið félagsins er að vinna að eflingu sundíþrótta og skyldra íþróttagreina. Tilgangi þessum hyggst félagið ná með æfingahaldi og þjálfun í viðkomandi greinum, þátttöku í keppni í þeim, kynningu og útbreiðslu þessara íþrótta, öflugu félagslífi félagsmanna, öflun fjár og annarri starfsemi er felur í sér iðkun þeirra og eflingu. - grein
Félagið hyggst einkum ná markmiðum sínum með þjálfun eigin sundhópa, en einnig
með samstarfi við önnur íþróttafélög eða samtök, og samkvæmt staðfestu skipuriti
félagsins, sbr. viðauka nr. I og II. - grein
Félagið er opið öllum, sem vilja stuðla að framgangi sundíþrótta og vinna að markmiðum félagsins. Stjórn félagsins skal viðhalda félagaskrá og skal hún liggja fyrir á aðalfundi ár hvert.
Þeir teljast félagsmenn sem óska eftir því að gerast félagar og greitt hafa árgjald félagsins. Stjórn félagsins hefur heimild til að lækka eða fella niður árgjald foreldra þeirra barna sem stunda reglubundnar æfingar með félaginu. - grein
Félagið er aðili að ÍBR og rækir skyldur og réttindi sín í samræmi við þá aðild. Fyrir hönd félagsins sitja á hverjum tíma tveir einstaklingar í Sundráði Reykjavíkur (SRR). Aðalfundur kýs árlega einn einstakling til tveggja ára setu í SRR, í samræmi við samþykktir þess. - grein
Aðalfundur félagsins skal haldinn fyrir 1. apríl ár hvert. Aðalfundur er lögmætur ef boðað er til hans með viku fyrirvara með auglýsingu í fjölmiðlum, t.d. með tilkynningu á heimasíðu félagsins. Einnig skal tilkynna skriflega um aðalfund, með sama fyrirvara, í öllum sundhópum félagsins.
Á dagskrá aðalfundar skal vera:
1. Setning.
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
3. Skýrsla stjórnar um liðið starfsár.
4. Reikningar félagsins lagðir fram.
5. Umræður um skýrslu og reikninga. Reikningar bornir upp.
6. Lagabreytingar.
7. Ákvörðun um árgjald
8. Kosningar
a) Kosning formanns til tveggja ára ef sitjandi formaður er að ljúka starfstíma sínum.
b) Kosning stjórnarmanna í laus stjórnarsæti til tveggja ára.
c) Kosning endurskoðanda og eins til vara.
d) Kosning eins fulltrúa til tveggja ára í SRR.
9. Staðfesting á tilnefningum í foreldraráð.
10. Önnur mál. - grein
Stjórn félagsins skipa 5 manns að meðtöldum formanni og fer hún með úrskurðarvald um málefni félagsins milli aðalfunda. Stjórn félagsins skiptir með sér verkum varaformanns, ritara, gjaldkera og meðstjórnenda á fyrsta stjórnarfundi eftir hvern aðalfund. Iðkendur, á aldrinum 16 – 25 ára, tilnefna úr sínum röðum áheyrnarfulltrúa í stjórn félagsins. Foreldraráð tilnefnir einnig áheyrnarfulltrúa í stjórn félagsins.
Stjórnin skal að jafnaði halda stjórnarfund mánaðarlega og auk þess, ef 4 eða fleiri stjórnarmenn æskja þess.
Stjórn félagsins er heimilt að skipa sér framkvæmdaastjórn. Stjórn félagsins ræður aðalþjálfara félagsins og aðra þjálfara að fengnum tillögum aðalþjálfara. Allar breytingar á mannahaldi eru á ábyrgð stjórnar hverju sinni. Stjórninni er heimilt að ráða framkvæmdastjóra til að sjá um daglegan rekstur félagsins. Þá getur hún falið einstökum félagsmönnum að inna af hendi störf í þágu þess og einnig skipað sérstakar nefndir í sama tilgangi. - grein
Stjórn félagsins ákveður æfingagjöld. Stjórnin ákveður einnig tilhögun sundæfinga að fengnum tillögum frá aðalþjálfara félagsins. Sundæfingar geta þeir einir stundað hjá félaginu sem iðka íþróttina í nafni félagins. Undanþága frá þeirri reglu er í höndum stjórnar hverju sinni. - grein
Félagsfund skal halda þegar stjórn félagsins ákveður eða þegar minnst 20 félagsmenn krefjast þess og skal til hans boða með sama hætti og til aðalfundar. - grein
Foreldraráð skal vera starfandi innan félagsins. Það skal skipað einum fulltrúa foreldra úr hverjum sundhópi félagsins og er skipað í tengslum við aðalfund félagsins.
Markmið foreldraráðsins á að vera :
– að styrkja sundmenn Ægis í öllum hópum til æfinga og keppni.
– að efla samskipti allra hópa og vera leiðandi í samstarfi foreldra innan félagsins.
– að starfa sjálfstætt og í samvinnu við stjórn Sundfélagsins Ægis að fjáröflun fyrir Sundfélagið Ægir.
– að stuðla að nánari kynningu og upplýsingamiðlun til félagsmanna Sundfélagsins Ægis og starfa að ýmsum verkefnum í samvinnu við stjórn þess.
Foreldraráð velur úr sínum hópi tvo einstaklinga til setu í stjórn Fatasjóðs Sf. Ægis.
Foreldraráð tilnefnir þrjá einstaklinga í Ferða- og mótanefnd Sf. Ægis. Einnig velur
ráðið úr sínum hópi áheyrnarfulltrúa til setu á stjórnarfundum félagsins. - grein
Aðalfundur getur ákveðið að gera þá menn, sem mestu hafa afrekað í þágu þess eða íþrótta almennt, að heiðursfélögum og er það mesti virðingarvottur sem félagið getur veitt.
Heiðursfélagar njóta allra almennra réttinda félagsmanns en eru undanþegnir greiðslu félagsgjalds. - grein
Gull- og Silfurmerki Ægis má veita á sérstökum tímamótum í sögu félagsins. Gullmerki Ægis má veita þeim einstaklingum sem lengi hafa unnið að framgangi félagsins eða unnið sérstök afrek undir merkjum þess. Stjórn félagsins tilnefnir einstaklinga til að hljóta Gullmerki.
Silfurmerki Ægis má veita þeim einstaklingum sem unnið hafa að framgangi félagsins eða unnið sérstök afrek undir merkjum þess. Stjórn félagsins tilnefnir einstaklinga til að hljóta Silfurmerki.
Stjórn félagsins skal halda skrá yfir þá sem hlotið hafa Gull- og Silfurmerki Ægis. - grein
Aldursflokkaviðurkenningar skal veita þrem einstaklingum í hverjum aldursflokki. Tvö stigahæstu sund almanaksársins skulu ráða röð þeirra.
Silfurægiringur telst sá einstaklingur innan félagsins vera, sem hefur æft sund samfellt í 5 ár eða lengur og er orðinn 12 ára gamall.
Gullægiringur telst sá einstaklingur innan félagins vera, sem hefur æft sund með Sf. Ægi samfellt í sjö ár, eða stundað íþróttina í 10 ár eða lengur og er orðinn 17 ára gamall. Þá má gera þann einstakling sem gerir félaginu sérstaklega vel að Gullægiringi.
Afreksviðurkenningu Ægis (bronsstyttu) skal veita þeim einstaklingum innan Ægis, sem fara á Ólympíuleika eða ná sambærilegum árangri í sundíþróttum. þessar viðurkenningar skal veita á uppskeruhátíð félagsins í upphafi hvers almanaksárs. Stjórn félagsins skal halda skrá yfir þá sem hljóta þessar viðurkenningar. - grein
Heimilt er að stofna minningarsjóði eða sjóði til sérverkefna í nafni félagins. Fjársýsla þessara sjóða skal vera á hendi gjaldkera félagsins og skal hann gera grein fyrir henni árlega á aðalfundi félagsins. Stjórn félagsins skipar þriggja – fimm manna sjóðstjórnir, sem munu starfa samkvæmt reglugerð hvers sjóðs fyrir sig. Reglugerðir sjóðanna skulu fá staðfestingu á næsta aðalfundi félagsins eftir stofnun þeirra og skulu fylgja lögum félagsins sbr. viðauka III, IV, V og VI. - grein
Reikningsár félagsins er almanaksárið. Skal gjaldkeri stjórnar leggja fram fullgerða reikninga félagsins og sjóða þess, á síðasta stjórnarfundi fyrir aðalfund. Reikningarnir skulu vera undirritaðir af endurskoðanda félagsins. - grein
2/3 hluta greiddra atkvæða aðalfundar þarf til að félagið verði lagt niður. Verði það samþykkt, skal eigum þess ráðstafað í þágu sundíþrótta samkvæmt nánari ákvörðun þess aðalfundar.
Taka skal sérstaklega fram í fundarboði ef tillaga um slíkt liggur fyrir aðalfundi. - grein
Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi. Tillögur til breytinga á lögunum þurfa að berast skriflega til formanns félagsins eigi síðar en þremur dögum fyrir aðalfund. Breytingatillögur skulu liggja frammi hjá formanninum. Breytingar, sem aðalfundur samþykkir á lögum öðlast þegar gildi nema aðalfundur ákveði annað.

