Viðauki III
- grein
Reglugerð um Guðrúnarbikar
Reglugerð um Guðrúnarbikarinn
Guðrúnarbikarinn er viðurkenning, sem Sundfélagið Ægir veitir þeim
sundmanni úr drengjaflokki sínum og þeirri sundkonu úr telpnaflokki sem best hafa
staðið sig á nýliðnu keppnistímabili. Viðurkenning þessi er veitt í minningu Guðrúnar
Einarsdóttur, fyrrum formanns Foreldra- og styrktarfélags Sundfélagsins Ægis. - grein
Guðrúnarbikarinn er í tveim eintökum og er farandbikar. Hann er
veittur að hausti ár hvert. Einnig er veittur eignarbikar hvorum viðtakanda hverju
sinni. - grein
Stjórn Ægis skal skipa dómnefnd, sem velur verðlaunahafa. Skal
dómnefndin skipuð fyrir 1. maí ár hvert. Formaður nefndarinnar skal hafa víðtæka
þekkingu á sundíþróttinni. Auk hans skulu sitja í nefndinni fulltrúi tilnefndur af
fjölskyldu Guðrúnar Einarsdóttur og yfirþjálfari félagsins. - grein
Við val á verðlaunahöfum skal nefndin hafa til hliðsjónar alla þá kosti,
sem góðan sundmann mega prýða svo sem afrek í keppni, verðlaun sem unnið er til,
þátttöku í stórmótum, frammistöðu á sundmótum almennt, áunnin stig skv.
viðurkenndum stigakerfum, framfarir og ástundun á keppnistímabilinu, framkomu í
keppni og fordæmi til annars sundfólks. - grein
Við ákvörðun nefndarinnar ræður einfaldur meirihluti. Nefndin skal
skila niðurstöðu sinni til stjórnar Sf. Ægis fyrir 1. september ár hvert. Nefndin
tilnefnir þann eða þau, sem afhenda Guðrúnarbikarinn hverju sinni. - grein
Gjaldkeri Sf Ægis skal hafa fjármálalega umsýslu vegna
Guðrúnarbikarsins.
Upplýsingar um Guðrúnarbikarinn
Ættingjar og vinir Guðrúnar Einarsdótttur, fyrrum formanns Foreldra- og
styrktarfélags Sundfélagsins Ægis, stofnuðu sjóð til að kosta gerð og afhendingu
Guðrúnarbikarsins á 75 ára afmælisári Ægis 2002. Í starfi sínu fyrir félagið lagði
Guðrún heitin sérstaka áherlsu á mikilvægi starfsins í flokkum drengja og telpna. Því
er þessi viðurkenning veitt sundfólki úr þessum aldursflokkum.