Viðauki V – Reglugerð Fatasjóð sundfélagsins Ægis

  1. grein
    Fatanefnd skal skipuð tveimur fulltrúum tilnefndum af foreldraráði og
    einum fulltrúa skipuðum af stjórn Sf Ægis.
  2. grein
    Fatanefnd skal sjá um og gæta að félagsfatnaði og hafa það að
    leiðarljósi að allir Ægiringar geti eignast félagsfatnað.
  3. grein
    Fatanefnd skal sjá um sameiginlegan fatnað – teppi – klukkur og fleira
    sem liðið notar.
  4. grein
    Stjórn Sf Ægis leggur sjóðnum til höfuðstól og gætir að því að
    nægilegt söfnunarfé komi til. Fatanefnd skal hafa það að leiðarljósi að sjóðurinn
    standi undir sér. Óheimilt er að gefa fatnað úr sjóðnum.
  5. grein
    Gjaldkeri félagsins skal hafa fjármálalega umsýslu sjóðsins.
    Staðfest á aðalfundi Sf. Ægis 17. febrúar 2004