Hagnýtar upplýsingar fyrir sundmót og keppnisferðir.
Fyrir bakkann
- Skó og sokka til að vera í á bakkanum (hreinir inniskór/íþróttatöfflur)
- Vatnsbrúsa
- Sundföt (amk ein fyrir upphitun, svo 1 til 2 fyrir keppnina)
- Tvenn sundgleraugu (ef önnur skyldu bila)
- Sundhettu merkta Ægi (þær er hægt að kaupa hjá þjálfara eða fararstjóra)
- Handklæði – 2-3 fjöldi þeirra fer eftir því hvað verið er að keppa í mörgum greinum um daginn.
- Hýja íþróttagalla/boli/stuttbuxur og allan merktan Ægis fatnað sem þið eigið til að vera í á milli greina.
- Hristur, hrossabresti, fána og allt það sem ykkur dettur í hug til að hvetja með 🥁
Til viðbótar fyrir útisundlaug
- Hlýja síða úlpu / Skíðagalla / pörku
- Síðar íþróttabuxur (stuttbuxur eru ekki nóg)
- Húfu
- Vettlinga
- Hlýja sokka/ullarsokka
Þegar sundmót er í útilaug er nauðsynlegt að hafa með sér hlý föt. Ef það er spáð rigningu þá eru vatnsheldar yfirhafnir og skófatnaður nauðsynlegt líka.
Útbúnaðarlisti til gistingar
- Þykk vindsæng eða þykk dýna (ef sofið er á gólfinu) Ath þunnar tjalddýnur eru of harðar fyrir skólastofugólf.
- Lak yfir vindsæng/dýnu
- Teppi/lak undir vindsængur (það takmarkar ískur á nóttunni þegar krakkarnir velta sér)
- Sæng/svefnpoki
- Koddi
- Náttföt (síðar buxur og síðermabolur)
- Tannbursta og tannkrem
- Eyrnatappa (ef nógu gömul til að nota slíkt)
- Svefngrímu (það eru yfirleitt ekki myrkvunargluggatjöld í skólastofum)
- Nesti (ávextir, snarl, safi sem millibita, alls ekkert nammi, orkudrykki, snakk eða kex), ekkert í glerumbúðum og ekkert með hnetum.
- Spil eða afþreyingarefni
- Föt til skiptanna.
Hvað á að gera á mótum
Láta þjálfarann alltaf vita eins fljótt og mögulegt er ef þú kemst ekki á mót.
- Mættu tímanlega á mótið. Þjálfarinn lætur þig vita hvenær þú átt að mæta fyrir mótið. Gættu þess að hafa nægan tíma til að klæða þig og hita upp.
- Láttu þjálfarann þinn alltaf vita strax og þú mætir.
- Fáðu að vita í hvaða greinum þú átt að keppa. Þú berð ábyrgð á því að vita hvenær þú átt að keppa. Fáðu upplýsingar hjá þjálfaranum eða skoðaðu riðlaskráningarnar.
- Skiptu um föt og farðu í upphitunarfötin þín (sundföt+íþróttagalla) og vertu með þjálfaranum og liðsfélögum þínum á bakkanum. Þú berð ábyrgð á eigum þínum, svo þú skalt ganga vel og snyrtilega frá þeim á því svæði sem liðinu er úthlutað.
- Þjálfarinn gefur þér leiðbeiningar um upphitun og lætur þig vita hvenær hún byrjar.
- Liðið heldur fund fljótlega eftir að upphitun lýkur og áður en mótið hefst. Þar er farið yfir breytingar sem gætu hafa orðið á seinustu stundu.
- Sundmenn eiga allir að vera saman og á sama stað svo þjálfarinn viti hvar þeir eru. Allir eru hvattir til að hvetja félaga sína. Ef þú situr uppi í stúku hjá foreldrum eða vinum, ertu ekki með liðinu.
- Þjálfararnir reyna að tala við alla sundmenn fyrir hvert sund. Sundmenn bera ábyrgð á að mæta á rétta staði við laugina og vera tilbúnir við rássvæði fyrir hverja keppni.
- Eftir hvert sund eiga allir sundmenn að tala við þjálfarann sinn til að ræða sundið, hvað gekk vel og hvað má bæta. Þú lærir af öllum sundum, hvort sem þau ganga vel eða illa.
- Eftir hverja keppni sendir þjálfarinn sundmenn til að synda niður, ef það er hægt, eða gefur aðrar leiðbeiningar. Allir sundmenn eiga að synda niður til að flýta fyrir því að líkaminn jafni sig eftir keppnina.
- Allir í liðinu eru hvattir til að vera á mótinu til loka þess og hvetja félaga sína til dáða.
- Hver og einn sundmaður á að láta þjálfarann vita þegar hann yfirgefur mótið.
- Að loknum hverjum mótshluta tökum við til og göngum snyrtilega frá okkar svæði.
Sundfólk sýnir félögum sínum og öðrum sundmönnum ávallt kurteisi og virðingu.
Almennt um sundmót
Allir sundmenn og foreldrar eru hvattir til að vera við laugina og hvetja alla Ægiringa þó þau sjálf séu ekki að keppa akkúrat í þeim mótshluta. Krakkarnir eru mjög dugleg að kenna hvert öðru hvernig hægt sé að peppa upp félaga sína bæði við ráspallana og hliðarlínur, einnig að hjálpast við að taka á móti þeim með Ægisteppi og hvatningu þegar þau koma upp úr. Það gerir mikið fyrir bæði liðið og einstaklinginn að taka þátt í því og upplifa sig sem hluta af hópnum, styðja og kynnast hvert öðru.
Öll hjálp frá foreldrum er vel þegin. Sérstaklega við að sjá um yngstu keppendurna og þá sem eru að mæta á sín fyrstu mót, það eru t.d. alltaf einhverjir sem verða þreyttir eftir erfiða keppni og vilja hvíla sig á gististað eða taka smá hlé og spila leiki/spil. Þá er gott að geta fengið einhverja fullorðna til að fara með þeim sem vilja og hafa smá yfirsjón með þeim yngstu meðan aðrir eru að sinna þeim sem eru á bakkanum.
Einnig þarf fullorðna til að skjótast og smyrja bakkanesti fyrir hópinn og koma með niðri sundlaug um miðbik hvers keppnishluta. Fyrir þá sem koma með eigið snarl, þá er mikilvægt að muna að sundmenn hafa ávallt með sér hollt og gott nesti í ferðir – sælgæti, gosdrykkir og snakk er ekki leyfilegt.
Varðandi snjallsíma, þá er börnunum að sjálfsögðu frjálst að mæta með þá (ekki gleyma hleðslutæki ef gist er). Takmörkum þó notkun þeirra við bakkann og einbeitum okkur að liðsfélögum okkar og fylgjumst vel með framvindu mótsins til að missa ekki af neinum greinum.
Þegar gist er þá þurfa öll símtæki/spjaldtölvur að vera á silent/airplane mode og afhend í gæslu fararstjóra frá kl 20:00 (nema fararstjóri ákveði annað) og til morguns. Þetta er til að gæta þess að allir krakkarnir fái nægilega næturhvíld (þau gista í sameiginlegu rými). Allir foreldrar eru hvattir til að ræða við börnin um ábyrga notkun á tækjunum og gefa leiðsögn um atriði eins og hvar og hvenær taka má myndbönd eða ljósmyndir, um samþykki og hvað þau eigi að gera ef þau vilja birta efnið sitt á netinu.
Á gistimótum er hægt er að ná í fararstjóra allan tímann meðan á ferðum/mótum stendur, foreldrar eru hvattir til að heyra frekar í fararstjórum ef eitthvað er, þar sem börnin eru upptekinn í upphitun, í hvíld eða að keppa.
Sundfólk sem náð hefur sjálfræðisaldri (18 ára) er alfarið á eigin ábyrgð en ber að sýna gott fordæmi og hegðun.
Hlutverk fararstjóra í ferðum
Fararstjórar skulu ávallt gæta öryggis í ferðum til og frá laug og að yngri sundmenn séu ekki einir á ferð. Sundfólk sem er ekki í gistingu á gistimótum er á ábyrgð foreldra og forráðamanna þeirra, fararstjórar bera einungis ábyrgð á sundfólki í gistingu (nema fararstjóri taki annað fram). Sundfólk sem náð hefur sjálfræðisaldri (18 ára) er alfarið á eigin ábyrgð.
Fararstjórar sjá til þess að settum reglum sé hlýtt s.s. notkun og geymsla snjalltækja, sælgætisbann o.s.frv. Sundfólk yngra en 18 ára þarf að biðja um leyfi ef þau þurfa að fara af sundlaugarsvæði (t.d. út í búð eða í gönguferð og slík leyfi eiga einungis við eldri sundmenn) o.s.frv.
Sundmenn eiga ávallt að fylgja hópnum og ef þeir af einhverjum ástæðum þurfa að fara frá hópnum þurfa fararstjórar að vita það með fyrirvara og þarf það að vera með leyfi foreldra.
Fararstjórar geta ekki reiknað með að geta sinnt einkaerindum í ferðalögum. Ef fararstjórar þurfa að bregða sér frá er það ávallt samkomulag við fararstjóra eða þjálfara.
Stjórn leggur mikla áherslu á að sundfólkið sé félaginu til mikils sóma. Skilji vel við gististað og gangi vel frá svæði félagsins eftir hvern hluta í laug s.s henda rusli og taka óskilamuni sem augljóslega eru á vegum félagsins.
Fararstjórar þurfa að vera góðar fyrirmyndir, þeir mega ekki reykja/nota rafrettur, nikótínpúða eða neyta áfengis á meðan á ferð stendur.
Fararstjórar skulu halda eftir öllum kvittunum fyrir útlögðum kostnaði í ferðinni og senda svo á gjaldkeri@aegir.is ásamt reikningsupplýsingum til að fá endurgreiðslu eftir að ferð lýkur.
Áður en lagt er af stað
- Stjórn eða þjálfari skal stofna spjallþráð fyrir alla þátttakendur og forráðamenn og fararstjórar skulu hafa stjórnenda aðgang að þeim þræði. Fararstjórar skulu kynna sig á spjallþræðinum (gæta þarf þess að símanúmer þeirra séu aðgengileg forráðamönnum, t.d. með því að skrá slíkt á sportabler).
- Farastjóri/fararstjórar hittast í vikunni fyrir mót með aðila úr stjórn eða þjálfara til að fara yfir það helsta sem framundan er á viðkomandi móti
- Fá nafnalista af þátttakendum á mótinu með nöfnum sundmanna og nöfnum og símanúmerum forráðamanna þeirra frá þjálfara (þessi gögn eru aðgengileg á sportabler)
- Nöfn þjálfara og símanúmer þeirra (gögn aðgengileg á sportabler).
- Yfirfara sjúkratösku, og gæta að í henni sé nægilegt af grunn hlutum (t.d. eins og plástrar og paracetamól) Kaupa það sem þarf að bæta við eða skipta út. Rukka svo gjaldkera félagsins eftir að ferð lýkur.
- Fá nokkrar auka sundhettur til að taka með frá þjálfara eða stjórn. Ef sundmenn fá sundhettu á sundmóti þarf að skrá það niður þannig að hægt sé að rukka sundmanninn eftir á.
- Nálgast áhöld og box fyrir bakkanesti/ávexti og þvo fyrir ferðina. Slíkt er geymt í laugardalslaug og hefur stjórn aðgang að því.
Það sem þarf að taka með
Allt sem þarf að taka með er hægt að nálgast í geymslu félagsins í Laugardalslaug, stjórn félagsins hefur aðgang að geymslunni. Öllu þarf svo að skila aftur hreinu í geymsluna aftur eftir mótið.
- Þurrkgrindur / Þvottagrindur til að sundfólk geti hengt upp sundfatnað og handklæði yfir nóttina
- Ægisteppi og yfirhafnir sem félagið á (ef um útimót er að ræða).
- Áhöld og box fyrir bakkanesti.
- Nokkrar auka sundhettur.
- Drykki eða veitingar sem félagið á geymt í kæli (það er alltaf eitthvað sem er til sem hefur orðið afgangs, fararstjórar hafa fullt leyfi til að taka það sem þeir telja að muni nýtast á sundmótum).
- Samlokugrill og framlengingarsnúrur ef fararstjórar ætla að bjóða upp á grillaðar samlokur.
- Borð fyrir veitingar (ef við á, t.d. er gott að hafa borð á Akranesleikum og AMÍ).
- Eldhúsrúllur, ruslapoka, einnota hanska.
- Fjölnota poka, eða kassa undir dót (ef þarf).
- Ægisfána, límband/teip og dragbönd til að festa hann (nylon fána, eru til nokkrir, ekki taka hátíðarfánana á mót) Ef ekki er til teip þá má kaupa það og rukka stjórn.
- Garðtjald (er samanbrotið í poka), er gott að reisa við bakka og skýlir gegn rigningu (ath þolir ekki mikinn vind). Íhuguð að nota bönd til að festa tjald og vigta þau niður með lóðum ef það er vindur.
- Sjúkrakassa.
Sundlaug
- Allar upplýsingar um viðkomandi mót s.s. tímasetningar mótshluta, upphitunar, verðlaunaafhendingar.
- Á mótsstað; fá mótaskrá og kynna sér fyrirkomulag s.s. niðurröðun liða í stúkur eða taka frá pláss á bakka fyrir félagið ef við á.
- Sjá til þess að sundmenn séu tilbúnir þegar þeir eiga að synda (sérstaklega yngri sundmenn).
- Minna sundmenn á að fara til þjálfara eftir sínar greinar svo þjálfari geti sagt til um sundið.
- Sjá til þess að sundmenn hagi sér vel, séu kurteisir og gangi vel um sundlaugarsvæðið.
- Hafa meðferðis bakkanesti / ávexti / ávaxtabox á bakkann.
- Hafa sjúkratöskuna ávallt með á eða við bakkann.
- Minna sundmenn á að mæti tímanlega í verðlaunaafhendingu og að þeir séu ávallt í félagstreyju / bol.
Gisting og matur
- Sjá til þess að sundmenn vakni á morgnanna og komist í ró á kvöldin á tilsettum tíma sem er ákveðinn í samráði við þjálfara, (til viðmiðunar er t.d. svefn eigi síðar en 22:00).
- Sjá um vörslu á snjalltækjum yfir nótt (fararstjórar bera enga ábyrgð á tækjunum).
- Reyna eftir fremsta megni að kynjaskipta í stofur / herbergi ef við á.
- Sjá til þess að sundmenn komi sér til og frá sundlaug á réttum tíma.
- Sjá til þess að sundmenn mæti í mat á réttum tíma.
- Hvetja sundmenn til að borða vel og drekka nóg vatn.
- Sjá til þess að sundmenn gangi vel um gistiaðstöðu, t.d. raði skóm og búi um, hengi sundföt til þerris o.þ.h.
- Kalla eftir upplýsingum ef sundmaður þarf að taka inn lyf.
- Koma upplýsingum til mótshaldara ef sundmenn hafa fæðuóþol/ofnæmi.
- Yfirleitt er hægt er að fá að geyma álegg og sósur og þannig í kæli á gististað. Fararstjórar setji sig í samband við starfsfólk eldhúss eða mótshaldara til að fá slíka aðstöðu.
Nesti / Bakkamatur
Félagið borgar fyrir nesti fyrir sundmenn til að hafa við sundlaugarbakkann (bakkanesti og ávaxtabox) til að nasla á í hverjum hluta mótsins. Fararstjórar þurfa að smyrja það nesti og skera niður ávexti.
- Áhöld og box fyrir bakkanesti er hægt að nálgast hjá stjórn (geymt í Laugardalslaug).
- Fararstjórar sjá um að versla vörur til að smyrja bakkanesti. Passa að halda eftir kvittunum og endurkrefja félagið svo eftir ferðina. Senda kvittanir ásamt reikningsupplýsingum á gjaldkeri@aegir.is
- Fararstjórar ákveða hversu mikið og hvar skuli versla (yfirleitt getur verið þægilegra að hoppa í verslun eftir að komið er á staðinn). Best er að skrifa niður þátttökulista fyrir hvern hluta til að sjá hversu margir krakkar verða á staðnum til að geta áætlað þörf.
- Best er að bjóða upp á samlokur og ávexti. Reynið að versla laktósafrían varning ef keyptar eru mjólkurvörur.
- Dæmi um innkaupalista
- Brauðhleifur
- Skinka eða kalkúnaálegg
- Gúrka
- Pítusósa eða sinnepssósa
- Laktósafrír ostur
- Ávextir (epli, bananar, melóna)
- Eldhúsrúllu, Ruslapoka, Einnota hanska
- Félagið á oft drykki sem má fara með og bjóða upp á. Ef ekki má kaupa þá í verslun. Ekki má kaupa sykraða, koffín, kolsýrða eða gosdrykki (þ.a.m. kókómjólk). Best er að kaups ávaxtadjúsa eða drykki líkt og gatorade/powerade.
- Ekki gert ráð fyrir að fararstjórar sinni sérþörfum líkt og ofnæmi eða óþoli. Best er að sundfólk með sérþarfir mæti með eigið nesti.
- Ef boðið er upp á grillaðar samlokur þá skal fararstjóri eða fullorðinn sjá um grillið til að forða slysum. Yngri krakkar skulu ekki umgangast það sjálf (aðstæður á mótsstað eru ekki þær sömu og heima og í skóla)
- Sælgæti er ekki leyfilegt.
Rúta
Það er ekki eins oft farið í rútur. Yfirleitt er sundfólki skutlað á einkabílum á mót. En ef farið er í hópferðarbíl þá er ágætt að hafa eftirfarandi atriði í huga
- Fararstjórar ákveða í samráði við bílstjóra hvar verður stoppað, gott að hafa tvö stopp á lengri leiðum eins og til Akureyrar.
- Fararstjórar hafa auga með því hvort sundfólk og farangur skili sér ekki í og úr rútu.
- Fararstjórar fara yfir rútuna þegar hún hefur verið yfirgefin af sundmönnum til að ganga úr skugga um að ekkert gleymist og snyrtilega sé skilið við rútuna.
Akranesleikar – Almennt
Akranes er fyrsta gistimótið sem yngstu hópunum okkar er boðið að taka þátt í. Það er rosalega gaman á mótinu og að hitta og gista með öllum hinum liðunum af landinu. Nálægðin við Reykjavík og umgjörð mótsins gerir það að mjög góðu tækifæri til að leyfa börnunum að kynnast því að ferðast með liðsfélögum sínum, gista með hópnum, mynda tengsl milli félaga og læra sjálfstæði á mótum. Góður undirbúningur fyrir stærri gistimót líkt og AMÍ og SMÍ sem þau taka svo þátt í þegar þau eldast.
⚠️ Athugið, Akranes er útimót og sundlaugin er nálægt hafinu. Það er sjaldnast gott veður alla helgina á Akranesi á þessum árstíma og nánast án undantekninga er annað hvort vindur utan af hafi eða rigning (yfirleitt hvort tveggja) einhverja daga. Börnin verða mjög fljótt köld í slíku veðri en finna það oft ekki sjálf fyrr en mjög seint (sem og áhorfendur). Góður fatnaður er þvi nauðsynlegur (sjá útbúnaðarlista fremst í skjalinu).
Gisting er í skólastofum Grundarskóla ef ekkert annað er tekið sérstaklega fram. Allur matur verður einnig framreiddur í Grundaskóla. Krakkarnir ganga á milli skólans og sundlaugarinnar. Hvert félag fær stofu útaf fyrir sig. Fylgist vel með hvaða inngangar í skólann eru ætlaðir Ægi (fararstjóri tilkynnir það).
Innifalið í gistiverði er:
- Gisting tvær nætur.
- Morgunmatur – laugardag og sunnudag.
- Hádegismatur – laugardag og sunnudag.
- Kvöldmatur – föstudag og laugardag.
Við höfum yfirleitt ekki náð að fá nógu marga til að rúta borgi sig þannig að hver og einn þarf að koma sér á Akranes sjálfur. Hvetjum sem flesta til að hópast saman í bíla ef þeir geta, fararstjórar sjá ekki um skipulagningu á því.
Viðvera foreldra og fararstjóra er yfirleitt skipulögð í aðdraganda mótsins, sem og mæting á staðinn.
Nauðsynlegt er að taka saman hversu margir krakkar eru að keppa í hverjum hluta og hversu margir munu gista og nota það til hliðsjónar til að áætla hversu marga fararstjóra og aðstoðarfólk þarf á staðinn.
Um mótið
- Fararstjóri úr hópi foreldra fer með og gistir með krökkunum í skólastofunni. Sundfélagið greiðir fyrir gistingu og mat fyrir fararstjóra.
- Fararstjórar sjá um að smyrja einfalt bakkanesti fyrir krakkana til að hafa yfir daginn. Óþarfi er fyrir krakkana að mæta með nesti nema um ofnæmi eða sérþarfir sé að ræða.
- Auk fararstjóra er nauðsynlegt að geta reitt á aðstoð foreldra til að hjálpa til með hópinn, sérstaklega ef hópurinn er stór og dreifist mikið yfir mótstímann
- Foreldar eldri barna eru hvattir til að sinna viðveru á föstudagshluta og seinni part sunnudags ef fararstjórar eru úr hópi foreldra með yngri börn.
- Það er kvöldvaka á laugardeginum eftir kvöldmat fyrir þá sem gista sem er gaman að taka þátt í, yfirleitt ís og bingóstuð með vinningum. 🥳
- Allir þátttakendur fá bakkanesti í boði félagsins en einungis þeir sem eru í gistingu eru skráðir í morgunmat, hádegismat og kvöldmat í Grundarskóla.
Ath, sundfólk sem er ekki í gistingu er á ábyrgð foreldra og forráðamanna á mótinu, ekki fararstjóra. Mótshaldarar bjóða yfirleitt ekki upp á að sundfólk sé einungis í fæði en ekki gistingu.