BodyFuel mót Ægis

Sundfélagið Ægir býður ykkur
hjartanlega velkomin á BODYFUEL-mót Ægis

Haldið í Laugardalslaug, 9.-11. Október 2026
Mótið fer fram í 25m laug í samræmi við lög og reglur
World Aquatics, SSÍ og World Para Swimming.

PDF skjal gildir ef það er misræmi milli í pdf og heimasíðunnar.

Skráning og upplýsingar

  • Á mótinu synda fatlaðir og ófatlaðir saman í riðlum.
  • Stungugjöld fyrir C hluta er 500 kr. fyrir hverja grein.
  • Stungugjöld í B hlutunum eru kr. 900 kr. fyrir einstaklingsgreinar og kr. 1.300 kr. fyrir
    boðsund.
    o 1.250 kr.- fyrir skráningar sem koma of seint.
  • Yngri en 10 ára geta synt í B hlutum mótsins hafi sundmenn gilda tíma.
  • Skráningarfrestur er til miðnættis mánudagsins 5. október 2026.
  • Aðeins verður tekið við úrskráningum og skráningum í boðsund eftir þann tíma. Skráningum í
    boðsund skal skila í síðasta lagi 60 mínútum áður en mótshluti hefst.
  • Skráningar eru í gegnum Tempus, gagnagrunn Sundsambands Íslands. skra.iceswim.is
  • Ef það er einhver sem þarf að fá aðgang að Tempus þarf að senda inn í gegnum þjónustuvefinn
    hér:https://iceswim.atlassian.net/servicedesk/customer/portal/34/group/101/create/339
  • Þjálfarar sem vantar aðgang að Swimify Coach mega sebda nöfn þjálfara og netfang á
    aegir@aegir.is
  • Stungugjöld greiðist inn á reikning Sundfélagsins Ægis í síðasta lagi fimmtudaginn 8. október.
    Sundfélagið Ægir, kt. 420369-4929, Reikningur: 0115 – 26 – 8888. Skýring: nafn félags sem
    greiðir.

Allar frekari upplýsingar veitir Berglind Ósk Bárðardóttir, yfirþjálfari Sundfélagsins Ægis
yfirthjalfari@aegir.is eða í síma 856-0843

Verðlaun

  • Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu 3 sætin í einstaklingsgreinum í 10-12 ára, 13-14 ára og 15+
  • Aðeins eru veitt verðlaun fyrir fyrsta sæti í boðsundsgreinum.
  • Ekki eru veitt sérstök verðlaun í flokkum fatlaðra.
  • 10 ára og yngri fá þátttökuverðlaun að loknum C mótshlutanum á föstudag.
  • Riðlaverðlaun verða í boði Bodyfuel.
C-Mót. 1 Hluti
Föstudagur 9.okt 2026
B-Mót. 2.Hluti
Laugardagur 10.okt 2026
Upphitun16:15-16:50Upphitun8:15-9:00
Keppni heftst17:00Keppni hefst9:10
Fyrir10 ára og yngriFyrir10-12 ára 13-14 ára og 15+
125m skriðsund KK16100m Baksund KK
225m skriðsund KVK17100m Baksund KVK
350m skriðsund KK1850m bringusund KK
450m skriðsund KVK1950m bringusund KVK
525m baksund KK20200m skriðsund KK
625m baksund KVK21200m skriðsund KVK
750m baksund KK2250m Flugsund KK
850m baksund KVK2350m Flugsund KVK
925m bringusund KK24400m fjórsund KK
1025m bringusund KVK25400m fjórsund KVK
1150m bringusund KK264x50m Skriðsund KK
1250m bringusund KVK274x50m Skriðsund KVK
154×25 skriðsund blandað
B-Mót. 3 Hluti
Laugardagur 10.okt 2026
B-Mót. 4.Hluti
Sunnudagur 11.okt 2026
Upphitun14:00-14:50Upphitun8:15-9:00
Keppni heftst15:00Keppni hefst9:10
Fyrir10-12 ára 13-14 ára og 15+Fyrir10-12 ára 13-14 ára og 15+
28 50m skriðsund KVK42200m bringusund KK
2950m skriðsund KK43200m bringusund KVK
30200m baksund KVK4450m baksund KVK
31200m baksund KK4550m bringusund KK
32100m bringusund KVK46200m flugsund KK
33100m bringusund KK47200m flugsund KVK
34400m skriðsund KVK48100m skriðsund KK
35400m skriðsund KK49100m skriðsund KVK
36100m Flugsund KVK50100m fjórsund KK
37100m Flugsund KK51100m fjórsund KVK
38200m fjórsund KVKHlé / verðlaunaafhending
39200m fjórsund KVK521500m skriðsund KK *
404x50m Fjórsund KVK53800m skriðsund KVK *
414x50m Fjórsund KK

* Áskiljum okkur rétt til fjöldatakmarkana í 1500/800 skrið ef þörf krefur.

VIT-HIT leikar 2025

Það voru 19 sundmenn úr Ægi ásamt fríðu og öflugu föruneyti sem skelltu sér á VIT-HIT leikana á Akranesi fyrstu helgina í júní. Sumir voru að synda á sínu fyrsta sundmóti á meðan aðrir voru til dæmis að ná lágmörkum á AMÍ og undirbúa sig fyrir stærsta mót ársins hjá yngri hópunum. Samvinna og gleði einkenndi alla Ægiringa þessa helgi.

Skoðið myndirnar frá VIT-HIT leikunum á samfélagsmiðlunum okkar.

Ægir á Instagram

Ægir á Facebook

RIG 2025

Sundkeppni Reykjavíkurleikanna fer fram 24. – 26. janúar 2025Það eru 20 Ægiringar sem synda á RIG í ár en Ægir keppir sem hluti af Reykjavíkurliðinu sem er sameiginlegt lið allra sundfélaga í Reykjavík.Það verður því sannkölluð sundveisla í Laugardalslauginni þegar sterkasta sundfólk Íslands, Ólympíufarar og sterkt sundfólk frá norðurlöndunum, evrópu, asíu og víðar úr heiminum kemur saman til að hefja 50m tímabilið. Sundkeppnin verður ein sú sterkasta sem hefur verið á RIG, von er á um 180 erlendum keppendum en um 350 íþróttamenn munu stinga sér í sundlaugina.

Við hvetjum ykkur til að mæta og styðja okkar fólk.Keppnin fer fram í Laugardalslaug:- Föstudagur 16:00-20:00 – undanrásir og úrslit- Laugardagur 9:30-13:00 – undanrásir- Laugardagur 17:00-19:30 – úrslit- Sunnudagur 9:30-13:00 – undanrásir- Sunnudagur 17:00-19:30 – úrslit

Við sjáum og veitingar í sjoppunni og því tilvalið að fá sér kaffi og veitingar og styrkja Ægi í leiðinni.

Hægt er að fylgjast með keppninni rafrænt því að smella hér.
https://live.swimify.com/competitions/reykjavik-international-games-2025-01-24/events/summary/1/1

ÍM25 8.-10. nóvember 2024

Sundfélagið Ægir syndir sem hluti af liði Reykjavíkur á Íslands- og Unglingameistaramótinu í 25m laug sem fram fer í Ásvallalaug, í Hafnarfirði, helgina, 8.-10. nóvember 2024.

Sundráð Reykjavíkur sendir frá sér sameiginlegt lið Reykjavíkur sem er samansett af Sunddeildum KR, Fjölnis og Ármanns sem og Sundélagsins Ægis. Það eru 41 sundmenn sem synda fyrir Reykjavík á ÍM25 2024 og þar af eru 18 frá Sundfélaginu Ægi.

Hægt er að fylgjast með úrslitum hér: https://live.swimrankings.net/43947/

Einnig verður streymi alla helgina hér : https://www.sund.live/channel?name=im25


Áfram Reykjavík!

Nettó mót Ægis 12. okt


Nettó mót Sundfélagsins Ægis verður 12. október fyrir krakka 13 ára og yngri.

Frábært mót fyrir sundmenn sem eru að synda sín fyrstu sundtök á móti.

Mótið er í tveimur hlutum og verða veitt þátttökuverðlaun til 10 ára og yngri í 1. hluta. Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu 3 sæti í einstaklings greinum í 11 ára og yngri og 13.ára og yngri í öðrum hluta. Aðeins eru veitt verðlaun fyrir fyrsta sæti í boðsundgreinum. Ekki eru veitt sérstök verðlaun í flokkum fatlaðra.

Sú nýbreytni verður á þessu móti, að það verða innheimt þátttökugjöld í stað stungugjalda.
Allar upplýsingar veitir Berglind Ósk Bárðardóttir, yfirþjálfari Sundfélagsins Ægis í tölvupósti yfirthjalfari@aegir.is.

Við hvetjum alla Ægisforeldra til að hjálpa til við mótið hvort sem það eru dómarstörf, sjoppan eða annað.

Smellið hér til að skoða starfsmannaskjalið til að skrá sig í verkefni.

Ægis keppnisfatnaður verðir til sölu í sjoppunni. Hægt er að skoða hann nánar með því að smella hér.

Reykjavík í öðru sæti á Aldursflokkameistara mótinu í sundi

Tímabilinu er nú lokið og endaði á frábæru móti AMÍ í Reykjanesbæ.

Reykjavíkurliðin Ægir, KR, Fjölnir og Ármann sendu sameiginlegt lið undir merkjum Reykjavíkur.
Samvinnan í Reykjavík á AMÍ 2024, skilaði sér í öðru sæti til okkar fólks. Allt gekk einstaklega vel og okkar sundfólk var okkur öllum til mikils sóma.
Í Reykjavíkurliðinu voru 61 einstaklingar sem keppti í 295 einstaklingsgreinum og 28 boðsundum.
Mótið var skemmtilegt og sást mikið af bætingum hjá okkar fólki og fullt af verðlaunum komu í hlut okkar sundfólks.

Við tekur nú sumarfrí í öllum hópum og hlökkum við til haustsins til að byrja aftur.

Sundskólinn er að sjálfsögðu í fullu fjöri allan júlímánuð.