Viðauki III – Reglugerð um Guðrúnarbikar

Viðauki III

  1. grein
    Reglugerð um Guðrúnarbikar
    Reglugerð um Guðrúnarbikarinn
    Guðrúnarbikarinn er viðurkenning, sem Sundfélagið Ægir veitir þeim
    sundmanni úr drengjaflokki sínum og þeirri sundkonu úr telpnaflokki sem best hafa
    staðið sig á nýliðnu keppnistímabili. Viðurkenning þessi er veitt í minningu Guðrúnar
    Einarsdóttur, fyrrum formanns Foreldra- og styrktarfélags Sundfélagsins Ægis.
  2. grein
    Guðrúnarbikarinn er í tveim eintökum og er farandbikar. Hann er
    veittur að hausti ár hvert. Einnig er veittur eignarbikar hvorum viðtakanda hverju
    sinni.
  3. grein
    Stjórn Ægis skal skipa dómnefnd, sem velur verðlaunahafa. Skal
    dómnefndin skipuð fyrir 1. maí ár hvert. Formaður nefndarinnar skal hafa víðtæka
    þekkingu á sundíþróttinni. Auk hans skulu sitja í nefndinni fulltrúi tilnefndur af
    fjölskyldu Guðrúnar Einarsdóttur og yfirþjálfari félagsins.
  4. grein
    Við val á verðlaunahöfum skal nefndin hafa til hliðsjónar alla þá kosti,
    sem góðan sundmann mega prýða svo sem afrek í keppni, verðlaun sem unnið er til,
    þátttöku í stórmótum, frammistöðu á sundmótum almennt, áunnin stig skv.
    viðurkenndum stigakerfum, framfarir og ástundun á keppnistímabilinu, framkomu í
    keppni og fordæmi til annars sundfólks.
  5. grein
    Við ákvörðun nefndarinnar ræður einfaldur meirihluti. Nefndin skal
    skila niðurstöðu sinni til stjórnar Sf. Ægis fyrir 1. september ár hvert. Nefndin
    tilnefnir þann eða þau, sem afhenda Guðrúnarbikarinn hverju sinni.
  6. grein
    Gjaldkeri Sf Ægis skal hafa fjármálalega umsýslu vegna
    Guðrúnarbikarsins.
    Upplýsingar um Guðrúnarbikarinn
    Ættingjar og vinir Guðrúnar Einarsdótttur, fyrrum formanns Foreldra- og
    styrktarfélags Sundfélagsins Ægis, stofnuðu sjóð til að kosta gerð og afhendingu
    Guðrúnarbikarsins á 75 ára afmælisári Ægis 2002. Í starfi sínu fyrir félagið lagði
    Guðrún heitin sérstaka áherlsu á mikilvægi starfsins í flokkum drengja og telpna. Því
    er þessi viðurkenning veitt sundfólki úr þessum aldursflokkum.