Viðauki II
um umgjörð þjálfunar og keppni, markmiðslýsingu félagsins, foreldrastarf og
fleira.
ÆGIR ER KEPPNISLIÐ SEM STEFNIR MARKVISST AÐ AFREKUM Í
SUNDÍÞRÓTTUM.
ÆGIR ER FYRIR SUNDFÓLK Í ÚRVALSFLOKKI OG ÞÁ SEM VILJA NÁ
GÓÐUM ÁRANGRI OG VINNA SKIPULEGA AÐ MARKMIÐUM SÍNUM.
SKÝR ÁSETNINGUR, EINBEITNI OG ÞRAUTSEIGJA, ER SÚ AFSTAÐA SEM
ÆGIR VÆNTIR AF HVERJUM OG EINUM.
SLÍK VIÐHORF GETA AF SÉR MEISTARA Í SUNDÍÞRÓTTUM OG Í
LÍFSLEIKNI.
MARKMIÐ
Sundfélagið ÆGIR lætur sér annt um velferð allra iðkenda og félagsmanna sinna.
Markmiðum ÆGIS má í stuttu máli lýsa þannig:
- Sem aðili að ÍBR og með fullum stuðningi og í samræmi við markmið SSÍ, leggur
Sundfélagið ÆGIR áherslu á hugsjónirnar um heilindi og sanngirni, góðar
aðstæður, forystu og hugvitssemi til að ná afburða árangri. - Sundfélagið ÆGIR býður faglega leiðsögn í öllu, sem lýtur að sundíþróttum.
- Sundfélagið ÆGIR býður bestu fáanlegu aðstæður, til að efla framfarir og
þátttöku alls sundfólks, með áherslu á að ná fram hámarksgetu hvers og eins,
miðað við þann hraða og álag, sem hæfir viðkomandi. - Með þátttöku í starfsáætlun Sundfélagsins ÆGIS, er sundfólki kennd
persónuleg ábyrgð og skyldurækni, íþróttamennska og drengskapur. Það er gert
með stuðningi, hvatningu og viðurkenningu á ástundun einstaklingsins. - Sundfélagið ÆGIR leggur áherslu á að fá til sín vel menntað fagfólk í þjálfun og
kennslu, fólk sem annt er um framfarir hjá liðsheildinni og einnig hjá hverjum
sundmanni fyrir sig. - Sundfélagið ÆGIR beitir sér fyrir að fjölskyldur iðkenda svo og samfélagið í
heild, styðji og láti sig varða iðkun sundíþrótta og keppni í þeim. - Sundfélagið ÆGIR veitir öllu íþróttafólki sínu tækifæri til að taka þátt í keppni
og annarri starfsemi á vegum félagsins. - Með góðri kennslu, athygli og leiðsögn sérfróðra þjálfara, stefnir Sundfélagið
ÆGIR að afburða árangri í keppni, bæði einstaklinga og liða, og ætlar að skipa sér
áfram í fremstu röð – bæði í héraði, á landsvísu og á alþjóðlegum vettvangi. - Sundfélagið Ægir lítur á sundmenn, foreldra þeirra og aðra félaga sína, sem
liðsheild. Liðsheildin er lykillinn að góðum árangri.
6
Lög Sundfélagsins Ægis með viðaukum og reglugerðum samþykkt á aðalfundi 2005
Stjórnendur og þjálfarar Sundfélagsins ÆGIS hafa mjög skýra mynd af þeirri
hugmyndafræði, sem liggur að baki þessara markmiða og fyrirætlana.
Sundfélagið Ægir hefur starfað í Reykjavík síðan 1927 og er eitt elsta félagið innan
vébanda ÍBR.
Sundfélagið Ægir er eina íþróttafélagið í Reykjavík sem helgar sig sundíþróttum
eingöngu.
Á hverju ári æfa innan Sundfélagsins ÆGIS mjög margir íþróttamenn og félagið er eitt
það stærsta og sigursælasta sinnar tegundar á Íslandi.
Börn frá 5 ára aldri geta tekið þátt í æfingum hjá Sundfélaginu ÆGI, en yngri börn eru
að sjálfsögðu velkomin á íþróttanámskeið félagsins.
Innan Sundfélagsins Ægis æfa úrvals íþróttamenn.
Íþróttafólk Ægis keppir á innanfélagsmótum, almennum félagsmótum, héraðsmóti,
landshlutamótum, Íslandsmótum, ungmennafélagsmótum og einnig á alþjóðlegum
vettvangi.
Keppnisfólk úr Sundfélaginu ÆGI, bæði fyrr og síðar, hefur keppt á Ólympíuleikum,
heimsmeistarmótum, Evrópumótum og Norðurlandamótum og oftast náð góðum árangri.
Keppnisfólk úr Sundfélaginu ÆGI, hefur margoft unnið Íslandsmeistaratitla og margir
Ægiringar eiga skráð Íslandsmet.
Sundfélagið ÆGIR starfar samkvæmt stefnuyfirlýsingu ÍSÍ um íþróttir barna og
unglinga.
Sundfélagið Ægir er Fyrirmyndarfélag ÍSÍ
Stjórn Sundfélagsins Ægis er skipuð sjálfboðaliðum.
Meginforsenda þess að æfinga- og keppnisáætlun að skili árangri er að hún nái til allra
þátttakenda og ögri getu þeirra, og stuðli þannig að betri árangri. Börn sem kynnast
vatni snemma, læra að skynja líkamshreyfingar í vatni á svipaðan hátt og þau skynja
hreyfingu og jafnvægi á þurru landi. Þjálfun á ungu sundfólki snýst um að bæta
undirstöðu sundiðkunar, það er að segja sundaðferðirnar fjórar, snúninga og stungum.
Tækniþjálfun á samleið með skemmtun og leikjum.
Í Sundfélaginu ÆGI er sundfólki skipt í hópa eftir getu og aldri. Þeir yngstu og óvönu
æfa tvisvar til þrisvar í viku en þeir sem lengst eru komnir æfa níu sinnum í viku eða
oftar.
Reyndara sundfólk fær þjálfun, sem er ætlað að auka líkamlegt úthald. Andlegur
undirbúningur er mikilvægur sem og að huga að næringu. Efsti flokkurinn samanstendur
af sundfólki sem hefur stundað strangar æfingar í mörg ár.
7
Lög Sundfélagsins Ægis með viðaukum og reglugerðum samþykkt á aðalfundi 2005
Þjálfarar ÆGIS hafa faglegt nám að baki. Þeir hafa helgað sig sundíþróttinni, vilja
sífellt læra meira og hafa brennandi áhuga. Reynsla og fyrri árangur þjálfaranna sannar
fagmennsku þeirra.
Sundíþróttin er aðeins hluti af lífi einstaklings. Framúrskarandi sundmenn þurfa að njóta
mikillar uppörvunar og stuðnings frá foreldrum sínum. Til að ná sem bestum árangri þarf
sundfólkið að setja sér markmið.
Á þessari heildarsýn byggir sundþjálfunaráætlun Sundfélagsins ÆGIS.
Sundfélagið ÆGIR vill stuðla að líkamsrækt, hollri næringu og góðri heilsu fyrir alla sem
iðka sundíþróttir á vegum þess.
Sundfélagið Ægir hefur í þjónustu sinni þjálfara sem eru menntaðir samkvæmt kröfum
ÍSÍ. Þeir sinna ofangreindum markmiðum af heilindum og stuðla að því að hver og einn fái
þjálfun við sitt hæfi. Aðalþjálfari félagsins heldur reglubundna samráðsfundi með öðrum
þjálfurum félagsins til að samræma störf þeirra.
Langtímamarkmið Sundfélagsins ÆGIs er að vera áfram í hópi bestu liða í Evrópu og
njóta alþjóðlegrar viðurkenningar.
SKIPULAG LIÐSINS
Í samræmi við grundvallarhugsjón félagsins, eru sundiðkenndum boðin viðfangsefni við
hæfi, hver sem aldur eða geta er. Þess vegna er Sundfélagið ÆGIR með tilsögn og
þjálfun fyrir alla aldurshópa og öll stig getu.
FORELDRARÁÐ
Foreldrastarf er mjög mikilvægt í íþróttafélögum og ekki síst í sundfélögum þar sem
mikið starf mæðir á foreldrum iðkenda. Þar má nefna allt starf við undirbúning og
framkvæmd sundmóta, umsjón með fjáröflun í samstarfi við stjórn félagsins og
framkvæmd á ýmsum félagslegum atburðum. Í tengslum við Sundfélagið Ægi hefur
starfað öflugt foreldrafélag, FSSÆ, sem hefur haft að markmiði að styðja sundfólkið og
félagið í keppnisferðum og mörgu öðru. Foreldrafélagið hefur í gegnum tíðina verið
ómetanlegur bakhjarl Ægis og gengt veigamiklu hlutverki í starfssemi félagsins. Við
hlutverki þess hefur tekið Foreldraráð, þar sem situr einn fulltrúi foreldra úr hverjum
æfingahópi tilnefndir í tengslum við aðalfund félagsins. Foreldraráði er ætlað að
samræma foreldrastarfið í Sundfélaginu Ægi. Foreldraráð Ægis tilnefnir tvo úr sínum
hópi í Fatasjóð Ægis. Önnur verkefni Foreldraráðs eru samhæfing starfa við sundmót,
veitingasala og fjáröflun í samráði við þjálfara og stjórn Sundfélagsins Ægis.
FÉLAGSSTARF – ÆGIR EITT FÉLAG
Starfsemi Sundfélagsins Ægis gengur út á að ná sem bestum árangri í sundíþróttum og í
anda þess tekur félagið þátt í þeim mótum og viðburðum er tengjast íþróttinni. Að auki
eru reglubundnir atburðir á vegum félagsins nokkrum sinnum á ári. Þar ber að nefna
Sunddag Ægis, fjölskylduhátið sem haldin er við upphaf sundárs. Þá er uppskeruhátíð
haldin í janúar á hverju ári, þar sem allir sundiðkendur félagsins fá viðurkenningu fyrir
8
Lög Sundfélagsins Ægis með viðaukum og reglugerðum samþykkt á aðalfundi 2005
þátttöku og árangur. Á vorin er sundári yngri hópa lokið ýmist með vorhátíð eða vorferð
iðkenda og foreldra. Eldri sundiðkendur hittast ásamt foreldrum sínum við lok SMÍ. Að
auki eru ýmsar uppákomur yfir vetrartímann sem miða að því að sameina alla keppnis- og
aldurshópa félagsins í eitt lið.
FORVARNIR
Sundfélagið Ægir telur að starfssemi félagsins stuðli að forvörnum. Sundfélagið Ægir
lýsir sig mótfallið öllu því sem talist getur neysla á fíkniefnum og ólöglegum lyfjum í
hvaða formi sem er. Allir þeir sem koma að starfi, æfingum og keppni í nafni
Sundfélagsins Ægis skuldbinda sig til að nota ekki tóbak eða önnur fíkniefni meðan á
þeim störfum stendur, né heldur að nota lyf til að auka árangur sinn. Til að tryggja að
iðkendur og félagar Ægis séu upplýstir um skaðsemi fíkniefna og ólöglegra lyfja eru
haldnir reglubundnir fræðslufundir um ýmis málefni tengd forvörnum.
UMHVERFISMÁL
Sundfélagið Ægir krefst þess af öllum sem starfa fyrir félagið og iðka sundíþróttir í
nafni þess, að þeir gangi vel um og virði náttúru landsins. Sundfélagið Ægir mun fræða
félaga sína um umhverfismál og hvetja til aukinnar varkárni í umhverfismálum.
Sundfélagið Ægir stefnir að því að koma upp trjálundi í minningu stofnenda þess. Í þann
lund verði gróðursett árlega ein planta í nafni hverrar sundgreinar.
JAFNRÉTTISMÁL
Starfssemi Sundfélagins Ægis stuðlar að jafnrétti kynja og aldurshópa. Sundfélagið
Ægir fylgist með því á skipulegan hátt að fjármagn skiptist með réttlátum hætti milli
kynja og aldurshópa, auk þess sem þörfum beggja kynja og allra aldurshópa er sinnt við
þjálfun í félaginu. Þá er það stefna félagsins að í stjórnum þess og ráðum sé sem mestur
jöfnuður milli kynja.
SKIPULAG OG FJÁRMÁLASTJÓRN
Skipurit félagsins hefur verið samþykkt á aðalfundi þess. Grundvöllur félagsins er að sem
flestir félagar þess og foreldrar iðkenda séu virkir í starfi þess. Á íþróttasviðinu er
stefnt að því að vinna þá titla sem í boði eru en þess einnig gætt að allir sundiðkendur
félagsins fái þjónustu og verkefni við hæfi. Félagið skal rekið með lágmarkshagnaði og
skal honum varið til frekari uppbyggingar félagsins. Unnið verður að því að aðskilja
bókhald yngri og eldri flokka. Fjárhagsáætlun ársins liggur fyrir. Félagið stefnir að því
að allir sem koma að þjálfun í félaginu verði launþegar þess.
ÆGIR – FYRIRMYNDARFÉLAG ÍSÍ
Sundfélagið Ægir er “Fyrirmyndarfélag ÍSÍ”.