Sundfélagið Ægir var stofnað þann 1. maí árið 1927.
Ægir er eitt stærsta og besta félagið í Reykjavík og hefur átt reglulega fulltrúa á Ólympíuleikum og fjöldann allan af sundmönnum í landsliði SSÍ bæði í fullorðinsflokkum og unglingaflokkum.
Auk þess að stunda metnaðarfullt starf fyrir bestu sundmennina þá er unnið með uppbyggjandi skipulag sem hefst í Gullfiskahópum með stigvaxandi kröfum upp í Gullhóp.
Yngri hópar félagsins æfa í Breiðholtslaug en þeir eldri æfa í Laugardalslaug.
Á sumrin er starfræktur sundskóli fyrir 4-12 ára í innilauginni í Breiðholtslag.
Stjórn 2024-2025
Nafn | Tölvupóstur | Sími | Hlutverk |
Helgi Þór Þórsson | formadur@aegir.is | 856 2045 | Formaður, SRR |
Foreldrastarf
Foreldrastarf er mjög mikilvægur þáttur í starfi Sundfélagsins Ægis. Foreldrar aðstoða við undirbúning og framkvæmd sundmóta, hafa umsjón með fjáröflun í samstarfi við stjórn félagsins og skipuleggja ýmsa félagslega viðburði. Í Sundfélaginu Ægi starfar öflugt foreldraráð sem hefur það að markmiði að styðja sundfólkið og félagið.