Kæru þátttakendur og starfsfólk á RIG 2020 sundmóti. Sundfélagið Ægir þakkar þátttökuna og stuðninginn á mótinu sem lauk fyrr í dag. RIG sundmótið var nú haldið í 15. sinn en mótið á rætur að rekja til þess Sundfélagið Ægir hélt sitt fyrst alþjóðlega mót árið 2005 við opnun innilaugarinnar í Laugardal. Í dag er mótið samstarfsverkefni Sundfélagsins Ægis og Sundsamband Íslands sem stýrir verkefninu fyrir hönd Íþróttabandalags Reykjavíkur.
Alls kepptu 315 sundmenn á mótinu í ár og þar af kom þriðjungurinn erlendis frá. Mótið var afar sterkt og nokkrir af sterkustu sundmönnum Norðurlandanna kepptu á mótinu. Það er afar mikilvægt fyrir sundfólkið okkar að geta boðið upp á sterkt alþjóðlegt sundmót á Íslandi og vonandi höldum við áfram á þeirri vegferð að gera RIG að enn betri viðburði í framtíðinni.
Takk fyrir stuðninginn!
Stjórn Sundfélagsins Ægis.
Góð hugmynd fyrir "Heillar viku"
Miðvikudagur, 02. desember 2009 08:31
Svona er æfa þeir í Ástalíu - kanski við prófum þetta á "Hell Week"
Niðurstöður aðalfundar 2022
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson
Miðvikudagur, 30. mars 2022 19:56
Sundfélagið Ægir hélt Aðalfund félagsins þann 29. mars síðastliðinn.
Megin niðurstöður fundarins voru eftirfarandi:
Helgi Þór Þórsson var kjörinn formaður félagsins til næstu 2ggja ára.
Ásgeir Ásgeirsson, Hildur Björk Kristjánsdóttir og Júlía Þorvaldsdóttir halda áfram í stjórn til eins árs.
Arnfinnur Jónasson kemur nýr inn í stjórn til 2ggja ára.
Guðni Einarsson hverfur úr stjórn og þakkar félagið honum afar vel unnin störf síðustu 2 ár.
Á fundinum var Kjartan Birgisson kjörinn áheyrnarfulltrúi foreldra fram að næsta Aðalfundi.
Fimm fulltrúar úr röðum foreldra voru tilnefndir í foreldraráð félagsins.
Kjör fulltrúa í SRR var vísað til nýrrar stjórnar.
Ákvörðun um félagsgjald var vísað til nýrrar stjórnar.
Skoðunarmaður reikninga var kjörinn Hólmsteinn Ingi Halldórsson og Pála Þórisdóttir til vara.
Félagið óskar nýjum formanni og öðrum kjörnum fulltrúum velfarnaðar í starfi fyrir félagið.