banner_12.jpg
 
Sundfélagið Ægir
Jakob á góðum tíma á HM Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Sunnudagur, 24. júlí 2011 11:14

Kobbiviagra Helvetica,sans-serif; font-size: 12px;">Jakob Jóhann Sveinsson synti 100 metra bringusund  á HM í Shanghi í nót.  Jakob synti á tímanum 1.01.51 sem er rétt við íslandsmetið  hans 1.01.31, sem han setti í Róm árið 2009.  Hann hafnaði í 27. sæti af 81 keppenda.

Til þess að komast áfram í undanúrslit þurfti að synda á 1:00.86 sem er rétt við A-lágmark á ÓL-London sem er 1:00.79. Jakob var 1.80 sek frá fyrsta manni og félaga sínum Alexander Dale Oen frá Noregi sem er fyrstu inn í undanúrslit á 59.71.

Hrafnhildur Lúthersdóttir, SH bætti íslandsmetið í 200m fjórsundi, 2.18.20 (26.sæti). Gamla metið átti Erla Dögg Haraldsdóttir, ÍRB og var 2.18.45 enn Erla Dögg synti á 2.21.86 (32. sæti.).

Á morgun keppir Hrafnhildur Luthersdóttir í 100m bringusundi og næsti Ægringur í laug er Anton Sveinn McKee sem keppir í 800m skriðsundi aðfaranótt þriðjudags(26.júlí). Miðvikudaginn 27.júlí keppir Ingibjörg í 50m baksundi.  Fimmtudaginn 28.júlí keppir svo Jakob í 200m bringu og Ragnheiður  í 100m skrið.  Föstudaginn 29.júlí keppir Eygló Ósk í 200m bak. Laugardaginn 30.júlí keppir svo Ragnheiður í 50m skrið og Erla Dögg í 50m bringu.

 
Sigrún Brá keppir í USA og setur Íslandsmet Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Föstudagur, 22. júlí 2011 08:25

Sigrún BráSigrún Brá Sverrisdóttir hefur verið í háskóla í Arkansas í USA . Hún ákvað að vera í sumarskóla í sumar og syndir með Razorback Aquatic Club.  Sigrún syndir núna á móti í Columbia, troche Missouri.

Sigrún keppti í 100skrið og 800 skrið á miðvikudag, náði sér ekki alveg á strik í 100m skrið enn synti á fínum tíma i 800m skriðsundi 9:05.20 og hafnaði í þriðja sæti, enn ísl.metið hennar er 9:00.72.

Á fimmtudag keppti hún í 200m skriðsundi og var í 5.sæti í undanrásum á 2:06.15 og endaði svo í öðru sæti í úrslitum á 2:05.32.

Á föstudag keppti Sigrún í 400m skrið, þriðja í undarásum á  4:25,88.  -  Í úrslitum synti Sigrún á 4:25.69 og endaði í fjórða sæti og rétt við hennar besta 4:24.95.  Íslandsmetið stendur þó enn síðan 1991 og er 4:22.56.

Sigrún Brá lauk svo keppni á laugardaginn með því að setja nýtt Íslandmet, 17.17,61 í 1500m skriðsundi kvenna.  Gamla metið átti Ingibjörg Arnardóttir sett árið 1992.

Til hamingju Sigrún og hlökkum til að sjá þig á klakanum í næstu viku.

 
AMÍ 2011 Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Þriðjudagur, 21. júní 2011 22:42

AMI 2011Glæsilegur hópur, view samtals 45 sundmenn halda af stað norður yfir heiðar á morgun og á fimmtudag til þess að keppa á Aldursflokkameistaramóti Íslands (AMÍ).

Mótið hefst á fimmtudag 23.06 Upphitun klukkan 15:00 og mótið klukkan 16:30 og keppt verður í löngu greinunum 400sk fyrir 12 ára og yngri og 800 og 1500 fyrir 13 ára og eldri.

 

Föstudagur 24.06
Fyrir hádegi (100flug og 200skrið) - Upphitun 07:30 – 08:55  -  Mót hefst   09.00
Eftir hádegi (100fjór, viagra sale 50sk, capsule 200br og  4x100sk) - Upphitun  15:00 – 15.25  -  Mót hefst  16:30

Laugardagur 25.06
Fyrir hádegi (200bak og 100br) - Upphitun 07:30 – 08:55  -  Mót hefst   09.00
Eftir hádegi (400sk,200fjór og 4x100 fjór)- Upphitun  13:30 – 14.45  -  Mót hefst  15:00

Sunnudagur 26.06
Fyrir hádegi (100sk og 200flug) - Upphitun 07:30 – 08:55  -  Mót hefst   09.00
Eftir hádegi (400fjór, 100bak og 4x50sk) - Upphitun  13:30 – 14.45  -  Mót hefst  15:00

Veðurspáin lofar ekki voðalega góðu það er spáð ágætis veðri á fimmtudaginn 9°C og sól enn svo á að rigna frá föstudegi og fram á sunnudag.  Munið því að taka með ykkur hlý föt , húfu, vettlinga, regnföt, vatnshelda skó og ULLARSOKKA… það er ekkert verra enn að vera blautur á tánum.  Eins og Emil í kattholti sagði þegar hann festst í glugganum með hausinn úti í rigningunni að þá fengi hann ekki kvef því hann hefði ekki blotnað á tánum..

Enn við stefnum að sjálfsögðu á að vinna AMÍ, hvort sem það verður rigning og rok eða sól og blíða. Þá er alltaf gaman að keppa á AMÍ á Akureyri.

ÁFRAM ÆGIR.

>>> Upplýsingasíða AMÍ

 
Myndband frá Kobba og Co í Singapore Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Þriðjudagur, 19. júlí 2011 18:42

 

 
«FyrstaFyrri211212NæstaSíðasta»

Síða 212 af 212
 

Á döfinni:

WorldClass