banner_8.jpg
 
Þríþraut


Metþátttaka í Heiðmerkurtvíþraut Ægis-Þríþrautar Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Rémi   
Sunnudagur, 15. apríl 2012 18:14

Heiðmerkurtvíþraut Ægis þríþrautar fór fram í blíðskaparveðri í morgun og hafa þátttakendur aldrei verið fleiri en alls mættu 38 til leiks. Keppendur hlupu alls 8km leið á skógarstígum og hjóluðu 15km á malarvegi.  Sigurvegari í karlaflokki var Hákon Hrafn Sigurðsson 3SH á tímanum 58:06 sem er nýtt brautarmet. Í kvennaflokki sigraði Birna Björnsdóttir 3SH en hún lauk keppninni á tímanum 1:04:35.

Ægir Þríþraut hefur um árabil staðið fyrir Heiðmerkurtvíþraut bæði á vorin og haustin. Áhugi á íþróttinni hefur aukist mikið síðustu ár og sérstaklega fer hlutur kvenna sífellt vaxandi sem ef til vill má tengja frábærum árangri Karenar Axelsdóttur þríþrautarkonu á alþjóðlegum vettvangi.

Úrslit

Konur

1.        Birna Björnsdóttir, buy advice 1:04:35, decease félag 3SH

2.        Alma María Rögnvaldsdóttir 1:09:22, sale félag Ægir þríþraut

3.        Margrét Pálsdóttir 1:18:51, félag Ægir þríþraut

Karlar

1.        Hákon Hrafn Sigurðsson á 58:06, félag 3SH

2.        David Roberson á 1:00:45, félag Tindur

3.        Benedikt Jónsson á 1:01:43, félag  HFR


Heildarúrslit er <<hér>>

Flókkarúrslit er <<hér>>

Myndir sem Guðmundur Guðnason tók eru << hér>>

 
Æfingar 29. mars - 10. apríl Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Rémi   
Miðvikudagur, 28. mars 2012 09:58

Þið fengið engin frí um Páska og æfingaáætlun fyrir Páskatímabilið er:

Fimmtudagur 29. mars
Sundæfing* - Frjálsur tími - Enginn þjálfari
 
Laugardagur  31. mars - WC Laugar
kl. 9.30 Hlaupaæfing - JK
 
Sunnudagur 1. apríl - WC Laugar
Hjólreiðaæfing - JK
 
Þriðjudagur 3. april
Sundæfing* - Frjálsur tími - Enginn þjálfari
kl. 17.30 Hjólaæfing - Laugardalsalug - JK
 
Fimmtudagur 5. apríl - Skírdagur.
Sundæfing* - Frjálsur tími - Enginn þjálfari
 
Laugardagur  7. apríl
kl. 9.30 Hlaupaæfing- WC Laugar - JK
 
Sunnudagur 1. apríl - Páskadagur
kl. 9.30 Hjólreiðaæfing -WC Laugar - JK
 
Þriðjudagur 10. april
Sundæfing* - Frjálsur tími - Enginn þjálfari
kl. 17.30 Hjólaæfing - Laugardalslaug - JK
 
*vegna fjarveru sundþjálfarans eru allar sundæfingar á blaði á innrivefi.

Hafið samband við Jens til að fá frekari upplýsingar um hjólreiða- eða hlaupaæfingana.

 
Góð þátttaka í Samhjóli Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Rémi   
Sunnudagur, 04. mars 2012 15:55
Í dag sunnudag hittust hjóla- og þríþrautarfólk á Samhjóli Ægis-Þríþrautar. Rúmlega 80 manns hjóluðu saman frá versluninni TRI á Suðurlandsbraut rangsælis hring um Reykjavík og Seltjarnarnes. Ferðinni lauk með góðu spjalli yfir kakó og rúnstykkjum í húsarkynnum TRI. Ægir-Þríþraut þakkar þátttakendum fyrir góðan félagsskap í dag.

 

Nokkrar myndir eru << hér >>

 
Ægir þríþraut heldur samhjól 4. mars Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Rémi   
Þriðjudagur, 28. febrúar 2012 10:42

Ægir-Þríþraut heldur þriðja samhjól ársins sunnudaginn 4. mars nk.

Mæting er við TRI þríþrautarbúð - Suðurlandsbraut 32.  Brottför um kl.10 og svo endað aftur í TRI um 12 leytið þar sem boðið verður upp á léttar veitingar.

Upplýsingar hjá Jens. Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  

Athugið að okkar spinning tími í Laugum dettur út þann dag.

 

Allir hvattir um að mætta!!!

 
Skriðsundsnámskeið byrjar 27 febrúar Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Rémi   
Sunnudagur, 19. febrúar 2012 16:32

Ægir Þríþraut heldur Skriðsundsnámskeið frá 27. Feb. til 21. Mars (samtals 8 skipti).

Kennt mánudaga og miðvikudaga kl. 20.30 til 21.30 í innilaug Laugardalslaugar.

Tvö námskeið verða í boði:
1. Fyrir byrjendur: Þeir sem eiga erfitt með að synda 25-50m skriðsund
Kennari: Gylfi Guðnason – Íþróttakennari

2. Fyrir lengra komna: Þeir sem vilja bæta skriðsundstækni sína
Kennari: Þórður Ármansson – Íþróttafræðingur Verð 9.500kr.

Upplýsingar og skráning:
gylfi_gudnason@hotmail.com - eða í síma 891-8133

 
«FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta»

Síða 9 af 20
 

aegir_3traut

Kt. 441207-1070

reikningsnr. 303-26-44120

 

Vetur 2012/13

 

Sundæfingar:

Innilaug Laugardal

Mánudaga: 7:00-8:00

Þriðjudaga: 6.15 - 7.30

Fimmtudaga: 20:30- 21:45

Laugardaga: 8:00-9:00 (Útilaug)

 

Hjólaæfingar:

Þriðjudaga kl. 18:00 - 20:00

Sunnudaga: 9:00- 12:00

Allar hjólaæfingar eru útiæfingar

Mæting: Laugar

 

 

Útiæfingar

Mæting: Laugar

 

 

Hlaupaæfingar:

Í samstarfið með Laugarskokk

Mánudaga: 17:30

Miðvikudaga: 17:30

Laugardaga kl. 9.00

 

Stjórn 2012

Jens Kristjánsson: formaður
jenskristjans(hjá)simnet.is

Rémi Spilliaert: Gjaldkeri
remisp50(hjá)hotmail.com

Arndís Björnsdóttir
arndisbj(hjá)hotmail.com

Gunnhildur Sveinsdóttir
dundasveins(hjá)gmail.com

Þorhallur Halldórsson
prothallus(hjá)gmail.com

Ari Eyrberg
ari(hjá)intellecta.is


 

 

WorldClass