|
Innitvíþraut í Laugum- 23. febrúar |
|
|
Skrifað af: Rémi
|
Sunnudagur, 20. janúar 2013 21:48 |
Fjórða innitvíþraut seríunar verður haldin 23. febrúar kl. 12.
Sund: Innilaug Laugardalslaug Hlaup: Hlaupabretti World Class í Laugum
Mæting: Matsalur World Class Greiðsla: Á staðnum fyrir keppnina. Skráning: Hér neðar eða á staðnum. Skráningu lýkur 1/2 tíma fyrir keppnina.
cialis sans-serif; font-size: 10pt;">- Æskilegt er að mæta tímanlega á keppnisstað um klukkan 11:00 og alls ekki síðar en 11:30, prostate það tekur sinn tíma að taka á móti greiðslum, cialis útdeila tímaflögum og merkja fólk. Svo verður auðvita að vera nægur tími til upphitunar. - Upphitun verður í útilaug. - Aðgangur að World Class er innifalinn í keppnisgjaldinu. - Einungis er tekið á móti peningum, enginn posi á staðnum. - Synt verður í 50 m laug og því þarf að synda 10 ferðir. Gert er ráð fyrir ca. 4 - 5 sundmönnum á braut. Talningafólk verður við hverja braut. - Þegar keppendur eru komnir nálægt því að klára 5 km á hlaupabrettinu þurfa þeir að gera mótshöldurum viðvart í tíma, með því að lyfta hendi. - Óheimilt er að hlaupa á hlaupabrettinu ber að ofan. - Ölgerðin skaffar drykki fyrir keppendur.
Skráning er <<hér>>
Reglurnar fyrir þrautina eru <<hér>> |
|
Skriðsundsnámskeið fyrir fullorðna byrjar 28. janúar |
|
|
Skrifað af: Rémi
|
Þriðjudagur, 15. janúar 2013 19:17 |
Ægir Þríþraut heldur Skriðsundsnámskeið frá 28. janúar. til 20. Febrúar (samtals 8 skipti).
Kennt mánudaga og miðvikudaga kl. 20.30 til 21.30 í innilaug Laugardalslaugar.
Tvö námskeið verða í boði: 1. Fyrir byrjendur: Þeir sem eiga erfitt með að synda 25-50m skriðsund Kennari: Gylfi Guðnason – Íþróttakennari
2. Fyrir lengra komna: Þeir sem vilja bæta skriðsundstækni sína Kennari: Rémi Spilliaert – Þjálfari Ægis-Þríþrautar
Verð 9.500kr. Inngangur í laugina er ekki innifallinn í námskeiðsgjaldinu.
Upplýsingar og skráning: Gylfi Gudnason:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
- eða í síma 891-8133 |
Æfingagjöld Ægis3 |
|
|
Skrifað af: Rémi
|
Miðvikudagur, 02. janúar 2013 12:14 |
Æfingagjöldin Ægis3 fyrir tímabilið 1. janúar - 30. júní 2013 eru: 22.500kr.
Innifalið í æfingagjaldinu eru:
3 sundæfingar á viku.
2 hjóla- spinningæfingar á viku.
Hlaupaæfingar með Laugaskokki.
50% afsláttur af árskorti í allar sundlaugar Reykjavikurborgar.
30% afsláttur af kortum hjá World Class -10 stöðvar.
Æfingagjöldin greiðast á reikninginn félagsins hér: Kt. 441207-1070 - reikningsnr. 303-26-44120.
Hafið samband við Jens eða Rémi til að fá frekari upplýsingar.
|
|
Gleðilegt nýtt ár 2013 !!! |
|
|
Skrifað af: Rémi
|
Þriðjudagur, 01. janúar 2013 22:00 |
Fyrstu æfingar ársins verða þannig:
Fimmtudaginn 3. janúar: sundæfing á blaði (verð ekki viðstaddur).
Sunnudagur 6. janúar: spinning í Laugum kl. 9.30.
Frá mánudegi 7. janúar verður æfingataflan eins og venjulega.
Kv. Rémi |
Hjólajakkar Ægis3 |
|
|
Skrifað af: Rémi
|
Föstudagur, 07. desember 2012 14:31 |
Stjórn Ægis3 hefur um nokkurt skeið unnið að því að finna heppilegan hjóla búning fyrir félagið. Niðurstaða er fengin í málið og leggjum við til að félagsmenn kaupi bláan hjólajakka sem heitir Lerro – frá spænska fyrirtækinu Etxeondo og síðan svartar buxur við (ef þið eigið þær ekki nú þegar). Jakkinn er eingöngu til í karlasniði en gengur ljómandi vel fyrir konur líka. Etxeondo framleiðir einnig flottar hjólabuxur af ýmsum gerðum.
Smella <<hér>> fyrir myndir af gallanum.
Jakkarnir eru seldir í TRI á Suðurlandsbraut 32, price see en þar má einnig fá svartar hjólabuxur.
Tilboðsverð: 27.990 kr.
Við vekjum athygli á því að númerin eru mjög lítið og jafnvel nettustu konur geta þurfa Large.
Þeir sem hyggjast kaupa sér jakka eru hvattir til leggja inn pöntun en gott er að kíkja í TRI og máta og finna út stærðir áður. Stærðir eru frá Small upp í XXXLarge. Jakkarnir verða svo merktir nafni eiganda og merki Ægi3 síðar.
Það verður hægt að máta jakkana fyrir power prófið sem við höldum á morgun 8. des.
Siðan skráið pöntun á << eftirfarandi slóð>> fyrir miðvikudaginn 12. desember.
<<Hér>>má sjá umræddan jakka.
Þynnri jakkinn er einnig í boði fyrir þá sem það kjósa - Smella <<hér>>.
Stjórnin
|
|
|
|
|
Síða 4 af 20 |