banner_7.jpg
 
Úrslit


Úrslit frá Ármannsmóti Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Sunnudagur, 25. mars 2012 23:47

Hér eru svo Úrslitin frá Ármannsmótinu:

18 Gull - 26 Silfur - 14 Brons

>>> Úrslit Ægiringar 12 ára og yngri

>>> Úrslit Ægiringar 13 ára og eldri

 
Samtals 14 verðlaun Actavis móti Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Sunnudagur, 18. mars 2012 18:14

Fjögur verðlaun bættust við á Actavis mótinu í dag.

Tvö silfur:
Rebekka Jaferian í 400m skrið
Paulina í 400m fjór

Tvö brons:
Paulina í 200m flug
Eiríkur í 50m skrið

>>> Úrslit Ægiringa á Actavis-mótinu

>>> Úrslitasíða mótsins

 
Úrslit frá Vormóti Fjönis Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Sunnudagur, 04. mars 2012 22:45

Nokkrir galvaskir Ægiringar tóku þátt í Vormóti Fjönis um helgina.  Þetta er nú í annað skiptið á þessu ári sem við tökum þátt í móti í 50m laug sem er mjög gott fyrir reynslubankann. Nokkrir náðu að bæta við sig AMÍ lágmörkum og AMÍ-hópurinn stækkar og stækkar með hverju mótinu.

Það er gaman að sjá hvað við eigum marga flotta sundmenn í 12 ára og yngri og ég held að það stefni í met-þátttöku í þeim aldursflokki hjá okkur á AMÍ.

Haldið áfram að vera dugleg að æfa því það eru þrár vikur í næsta sundmót, thumb Sundmót Ármanns sem verður í 25m laug.

>>> Úrslit Ægiringa á Vormót Fjölnis

 
Úrslit frá Stigamóti Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Föstudagur, 24. febrúar 2012 22:34

Þriðja Stigamót Ægis fór fram í kvöld við frekar óvenjulegar aðstæður.  Þar sem að "Brúin" var biluð þurftum við að halda mótið þversum í lauginni og notast við handklukkur.  Um 50 krakkar mættu á svæðið og stóðu sig frábærlega vel og margir náðu að bæta sýna bestu tíma þrátt fyrir að aðstæður væru ekki eins og best verður á kosið.

Þökkum öllum þeim sem hjálpuðu til við framkvæmd mótsins.

>>> Úrslit frá þriðja Stigamóti Ægis

 
Úrslit frá Gullmóti KR Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Mánudagur, 13. febrúar 2012 15:04

Gull mót KR, pills eitt fjölmennasta mót ársins var haldið um helgina í Laugardalnum.  Flottur árangur náðist miðað við æfingaálag undanfarnar vikur.

Eygló Ósk Gústafsdóttir setti nýtt Ægis- Stúlknamet í 50m flugsundi og var öðru sæti í „Super Challange“ hásbreidd frá Ingibjörgu K. Jónsdóttir SH sem sigraði.

Aðrir sem komust í úrslit í „Super Challange“ voru Marta Buchanevic sem varð í 4.sæti í 12 ára og yngri, pilule Paulina Lazorikova 7.sæti í stúlknaflokki, salve Guðlaug Edda Hannesdóttir í 5.sæti í kvennaflokki og Maríanna Kristjánsdóttir í 6.sæti í kvennaflokki.

Í stigakeppni einstaklinga var Eygló Ósk stigahæst í þremur greinum í Stúlknaflokki og í öðru sæti í heildina á öllu mótinu.  Rebekka Jaferian var þriðja stighæst í stúlknaflokki.

Í Karlaflokki voru bestu afrek mótsins þau að Anton Sveinn McKee var með samalagt flest stig í þremur greinum í Karlaflokki. Hólmsteinn Skorri Hallgrímsson var í öðru sæti í flokki 12 ára og yngri.

Margar persónulegar bætingar, AMÍ lágmörk og IM-50 lágmörk náðust um helgina.

Nú er bara að halda áfram að vera dugleg að æfa því það styttist óðum í Íslandsmeistaramót (IM-50) og Aldursflokkmeistaramótið (AMI).

Úrslit Ægiringa á Gullmóti KR:

>>> Gull-hópur

>>> Silfur-hópur

>>> Brons-Laugardal

>>> Brons-Breiðholti

 
«FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta»

Síða 7 af 18
 

WorldClass