banner_11.jpg
 
Jakob Jóhann Sveinsson maður mótsins Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Mánudagur, 22. mars 2010 14:25

Jakob Jóhann Sveinsson með BikaranaÓlafur Ragnar og Jakob Jóhanntroche Helvetica, rx sans-serif;">Jakob Jóhann Sveinsson hlaut Pétursbikarinn, look Sigurðarbikarinn og Ásgeirsbikarinn fyrir frammúrskarandi árangur á IM-50 og HM í sumar.

Pétursbikarinn fékk Jakob fyrir 200 m bringusund er hann synti á 2:12.39 á HM í Róm og gefur það sund honum 889 FINA stig. Pétursbikarinn Pétursbikarinn er gefinn í minningu Péturs Kristjánssonar sundkappa úr Sunddeild Ármanns Pétursbikarinn er farandgripur sem veittur er árlega í karlaflokki fyrir besta afrek í sundi samkvæmt stigatöflu Fina unnið frá lokum ÍM 50 í fyrra og að lokum ÍM 50 í ár.

Sigurðarbikarinn fyrir 100 m bringusund sem hann synti á 1:01.84. Það sund gefur honum 850 FINA stig. Sigurðarbikarinn er gefinn í minningu Sigurðar Jónssonar Þingeyings. Hann er veittur fyrir besta bringusundsafrekið á ÍM-50 hvort heldur sem er kvenna eða karla.
Ásgeirsbikarinn fyrir 100 m bringusund. Hann synti það á tímanum 1:01.84 og gefur það sund honum 850 FINA stig. Ásgeirsbikarinn er gefinn í minningu Ásgeirs Ásgeirssonar fyrrverandi forseta Íslands og afhenti Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, bikarinn. Ásgeirsbikarinn er farandgripur sem er veittur árlega fyrir besta afrek, unnið á Íslandsmeistaramóti í 50 metra laug sem haldið er á vegum Sundsambands Íslands.

TIL HAMINGJU KOBBI..

 
 

Á döfinni:

WorldClass