Sundfélagið Ægir er flottasta og besta liðið í Reykjavík og þó víðar væri leitað. Það kom í ljós á Reykjavíkurmeistaramótinu um helgina. Krakkarnir okkar stóðu sig frábærlega vel. Sértaklega vil ég hrósa Kristrúnu, tadalafil Ásbjörgu, Inga Þór og Örnu Þórey þjálfurum yngri hópanna fyrir frábært starf því ungu krakkarnir okkar fóru alveg á kostum á þessu móti. Einnig voru stóru krakkarnir okkar að standa sig vel. Þau syntu margar greinar á mótinu og voru að synda hratt og leggja sig af fullum krafti í öll sund. Niðurstaðan var sú að Sundfélagið Ægir var með yfirburði í flest öllum aldursflokkum.
>>> ÚRSLIT ÆGIRINGA Á MÓTINU
Heildarstig = 1.546 stig (konur=820 stig, karlar = 726 stig)
>>> Stigastaða eftir aldursflokkum
Stigahæstu einstaklingar eftir FINA stigum
Stigahæsta Hnátar (10 ára og yngri) Sunna Svanlaug Vilhjálmsdóttir 575 stig
Stigahæsti Hnokkinn (10 ára og yngri) Brynjólfur Óli Karlsson 585 stig
Stigahæsta Meyjan (11-12 ára) Ragnheiður Karlsdóttir 1.099 stig
Stigahæsta Stúlkan (15-17 ára) Eygló Ósk Gústafsdóttir 2.258 stig (stighæst á mótinu)
Stigahæsti Pilturinn (15-17 ára) Anton Sveinn McKee 1.771 stig
>>> þrír stigahæstu í hverjum aldursflokki
TAKK FYRIR GÓÐA HELGI
|