Skráning á haustmisseri 2021 |
|
|
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson
|
Fimmtudagur, 05. ágúst 2021 09:51 |
Kæru sundmenn og forráðamenn. Nú er skráning í sundhópa hafin fyrir haustmisseri 2021.
Skráningar fram í rafrænu skráningarkerfi Sundfélagsins Ægis í Sportabler. Hægt er að greiða með greiðslukorti eða skipta greiðslum í allt að 4 hluta. Hefjið skráningu með því að smella hér eða á krækjuna vinstra megin á síðunni.
Það er mikilvægt að skrá sundmenn sem fyrst til að hægt sé að staðfesta æfingtöflu hópanna en fyrstu drög að henni má finna hér eða á síðunni til vinstri. Vakin er athygli á því að æfingataflan getur breyst næstu vikur á meðan allir hópar eru að komast í gang.
Sundmönnum sem hafa snjallsíma og forráðamönnum er bent á að hlaða niður snjallforritinu Sportabler til að fylgjast með æfingatímum og tilkynningum frá þjálfurum.
Mikilvægt er að fylgjast með fréttum hér á heimasíðu félagsins og frá þjálfurum á facebook síðum hópanna (Gull, Silfur, Brons).
Stjórnin.
|