banner_14.jpg
 
Ægiringar standa sig vel á ÍM50 Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson   
Sunnudagur, 12. apríl 2015 09:43

Auk Norðurlandamets og tveggja Íslandsmeta hjá Egló Ósk Gústafsdóttur í 100 m baksundi og 200 metra baksundi og tveggja Íslandsmeistaratitla hjá Ingu Elínu Cryer í 400 metra skriðsundi og 200 metra flugsundi hafa aðrir Ægiringar einnig staðið sig afar vel á mótinu en Ægir er með mjög ungan sundhóp á ÍM50 í ár.

Birkir Snær Helgason varð annar í 100 m skriðsundi og í fjórði í 50 metra skriðsundi. Þá varð Birkir fimmti í 100 m flugsundi og sjötti í 400 m skriðsundi. Þetta er frábær árangur hjá Birki í stuttum greinum en Birkir hefur mest helgað sig langsundum í seinni tíð.

Marta Buchanevic varð í 6. sæti í bæði 50 m bringusundi og 100 m bringusundi sem er frábær árangur hjá þessari ungu sundkonu.

Þá varð Hólmsteinn Skorri Hallgrímsson í 5. sæti í 200 metra fjórsundi, discount seek Gabríela Rut Vale í sjöunda sæti í 200 m baksundi, unhealthy Hafsteinn Ari sjöundi í 200 m baksundi og Hilmir örn Ólafsson í 8. sæti í 1500 metra skriðsundi sem er ótrúlega flottur árangur hjá þessum ungu sundmönnum í Ægi. 

Síðasti dagur ÍM50 er í dag, sunnudag.

 
 

Á döfinni:

WorldClass