banner_12.jpg
 
Flott afmælisveisla Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Miðvikudagur, 02. maí 2012 22:15

100x100m boðsundSundveisla stóð yfir allan daginn í gær í tilefni stórafmæli Ægis þar sem 85 ár eru liðin síðan félagið var stofnað. Dagurinn var tekinn snemma og 100 Ægiringum smalað saman og synt 100x100m boðsund í fyrsta skipti á Íslandi. Boðsundsveitina skipuðu krakkar úr öllum hópum félagsins af öllum aldri, capsule stærðum og gerðum. Margir gamlir sundmenn sem ekki hafa sést lengi tóku upp skýluna og stungu sér til sunds. Eygló Ósk Gústafsdóttir synti fyrsta sprett og Jakob Jóhann Sveinsson þann síðasta.

thumb avant garde;">Lokatíminn var 2 klukkustundir 20 mínútur og 26 sekúndur.

>>> Myndir frá 100x100m boðsundi.

AlexSíðasti spretturinn var tileinkaður Alexander Dale Oen en þær hræðilegu fréttir bárust í laugina rétt áður en Jakob stakk sér til sunds að vinur hans hafi látist. Við munum minnast þessa frábæra félaga sem gaf sér margoft tíma til að koma hér í heimsókn til Íslands. Nú síðast um páskana dvaldi hann hér og æfði með Sundfélaginu Ægi, áður en hann hélt af stað í æfingabúðir til Flagstaff. Það er sannur heiður að hafa kynnst þessum brosmilda og glaða strák frá Noregi og hans er sárt saknað um allan sundheiminn. Sendum við samúðarkveðjur til fjölskyldu og ættingja hans í Noregi.

AfmæliAð loknu boðsundi var 4. stigamót Ægis haldið þar sem yfir 60 ungir og efnilegir Ægiringar syntu skriðsund og bringusund. Margar flottar persónulegar bætingar og AMÍ lágmörk náðust á mótinu. Endað var á Forsetaboðsundi þar sem skipt var í 6 lið og keppt fyrir forsetann.

>>> Úrslit frá Stigamóti

Svo haldin heljarinnar afmælisveisla þar sem Ægiringar komu og fögnuðu saman. Haldnar voru ræður, veittar viðurkenningar til sundmanna, þjálfara og fyrrverandi og núverandi stjórnarmanna og formanna.

>>> Myndir frá afmælisveislunni.

Takk fyrir frábæran dag og til hamingju Ægiringar nær og fjær.

 
 

Á döfinni:

WorldClass