Um síðustu tvær helgar fór fram svokölluð Conference sundmót hjá Bandarískum háskólum. Þar eiga Íslendingar þó nokkra góða sundmenn um síðustu helgi syntu þær Sarah Blake Bateman - Hrafnhildur Lúthersdóttir og Sigrún Brá Sverrisdóttir og stóðu þær sig ágætlega.
Núna um helgina voru Erla Dögg Haraldsdóttir - Birkir Már Jónsson - Árni Már Árnason og Jóhanna Gerða Gústafsdóttir að keppa.
Árni Már Árnason setti 3 skólamet og var útnefndur sundmaður ársins í sinni sundmótaröð. >>> Frétt á heimasíðu Skólans
Í Sun Belt Conference mótinu sem fram fór í Rockwall Texas var það Jóhanna Gerða sem vann allar sínar greinar, case 200 fjór - 200 skriðsund og í nótt 200 yarda baksund á frábærum tíma 1.54.40, þetta er þrettándi besti tími ársins í USA og er hún því að fara á NCAA mótið eftir tvær vikur.
Hún setti fjögur skólamet, tvö mótsmet og tvö SBC met. Hún varð sundmaður mótsins og ársins í Sun Belt Con mótaröðinni og þjálfari hennar þjálfari ársins.
>>> Frétt á heimasíðu skólans
>>> Viðtal við Jóhönnu Gerðu
Allir þessir Íslensku sundmenn munu koma á Íslandsmeistaramótið í 50 metra laug í apríl og reyna við ÓL lágmörkin.
|