Eygló með brons í 200m baksundi |
|
|
Sunnudagur, 06. desember 2009 08:52 |
![Eygló Ósk](/images/stories/Myndir/eyglo_im25_09.jpg)
Eygló Ósk Gústafsdóttir var rétt í þessu að næla sér í bronsverðlaun í 200m baksundi á NMU í Bergen. Eygló byrjaði ekki nógu hratt og var í 5 sæti eftir 100m, store var svo komin í 4.sætið eftir 150m og synti svo glæsilegan endasprett og endaði í 3ja sæti á tímanum 2:19, buy viagra 00. (33.4 - 35,6 - 36,0 - 33,9) Frábær barátta hjá þessari ungu og efnilegu sundkonu.
![anton_im25_09](/images/stories/Myndir/anton_im25_09.jpg)
Anton Sveinn McKee synti 400m skriðsund á tímanum 4:10,17 enn hann á best 4:03 síðan á IM-25. Anton byrjaði ágætlega fyrstu 150 enn svo datt hraðinn niður.
Eygló og Anton kepptu svo bæði í 4x200m skriðsund boðsundi. Eygló fór síðastasprett á 2:09,37 og Anton fór fyrst sprett á 1:59,14.
Þessi ferð fer í reynslubankann. Það er fullt af flottum sundmönnum á norðurlöndum í dag og gaman fyrir þau að kynnast þeim. Nú er bara stefnan sett næst á Evrópumót Unglinga.
>>> Nánari úrslit frá mótinu
ÁFRAM ÆGIR
|