Tvö Íslandsmet, recipe eitt telpnamet, þrír Íslandsmeistara titlar, eitt silfur og tvö brons.
![IM25gullgellur](/images/stories/Myndir/IM25gullgellur.jpg)
Ægiringar stóðu sig frábærlega vel á öðrum degi IM-25 2009.
Bringusundskóngurinn Jakob Jóhann Sveinsson kom, sá og sigraði í 200m bringusundi er hann setti stórglæsilegt Íslandsmet, 2:07,75 og bætti eigið Íslandsmet um tæpar þrjár sek. Þess má geta að Norðurlandametið í greininni sem Chris Christensen á er 2:07:40. Stórglæsilegur árangur.
Gull-gellurnar okkar í boðsundum settu svo nýtt met í 4x50m skriðsundi á tímanum 1:46,11 og slógu metið okkar frá því í fyrra um 1/2 sek. Sveitina skipuðu þær Sigrún Brá, Eygló Ósk, Karen Sif og Jóhanna Gerða.
Eygló Ósk Gústafsdóttir átti einnig frábæran dag. Hún varð í þriðja sæti í 100m skriðsundi á tímanum 57,67 sem er rétt við Telpnametið í greininni. Svo landaði hún sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli er hún sigraði 50m baksund á nýju telpnameti 30,19. Auk þess að synda í boðsundsveitinni í 4x50m skriðsundi.
Jóhanna Gerða Gústafsdóttir fékk silfur í 50m baksundi á tímanum 30,56
Karla boðsundsveitin okkar landaði svo bronsverðlaunum í 4x50m skriðsundi á tímanum 1:38.75. Sveitina skipuð Jón Símon, Sigurður Örn, Styrmir Már og Jakob Jóhann.´
Ægir átti keppendur í öllum greinum í úrslitum í dag. Nema í 100m fjór karla þar sem Styrmir skráði sig úr þar sem úrslitin í þeirri grein eru rétt á undan 100m skriðsundi.
Steinunn María Daðadóttir var í 6. sæti í 100m fjórsundi kvenna á 1:08.72.
Karen Sif Vilhjálmsdóttir var í 4 sæti í 100m skriðsundi á 59,27.
Jón Símon Gíslason var í 4. sæti í 100m skriðsundi á 52.91
Styrmir Már Ómarsson var í 8.sæti í 100m skriðsundi á 54.46
Karen Jóhannsdóttir var í 7.sæti í 200m flugsundi á 2:35.74
Ægir Benediktsson var í 7.sæti í 200m flugsundi á 2:28.75
Steinunn María Daðadóttir var 6 sæti í 200m bringusundi á 2:44.99
Karen Sif Vilhjálmsdóttir var í 7.sæti í 200m bringusundi á 2:52.48
Sindri Sævarsson var í 4.sæti í 50m baksundi á 28.75
Jón Símon Gíslason var í 5.sæti í 50m baksundi á 28.98
TIL HAMINGJU ÆGIR, haldið áfram á þessari braut...
>>> Bein Úrslit frá IM-25 2009
|