Foreldraráð Sundfélagsins Ægis |
Foreldrastarf er mjög mikilvægur þáttur í starfi Sundfélagsins Ægis. Foreldrar aðstoða við undirbúning og framkvæmd sundmóta, hafa umsjón með fjáröflun í samstarfi við stjórn félagsins og skipuleggja ýmsa félagslega viðburði. Í Sundfélaginu Ægi starfar öflugt foreldraráð sem hefur það að markmiði að styðja sundfólkið og félagið.
Í foreldraráði Sundfélagsins Ægis starfa sundárið 2019 - 2020:
Í foreldraráði situr minnst einn fulltrúi foreldra úr hverjum æfingahópi. Foreldraráði er ætlað að samræma foreldrastarfið í Sundfélaginu Ægi. Foreldraráð Ægis tilnefnir tvo úr sínum hópi í Fatanefnd Ægis. Önnur verkefni Foreldraráðs eru samhæfing starfa við sundmót, veitingasala og fjáröflun í samráði við þjálfara og stjórn Sundfélagsins Ægis.
Úr lögum Sundfélagsins ÆGIS. Foreldraráð skal vera starfandi innan félagsins. Það skal skipað einum fulltrúa foreldra úr hverjum sundhópi félagsins og er skipað í tengslum við aðalfund félagsins. Síðast uppfært 22.4.2019. |