Heimilisfang: Laugardalslaug, Sundlaugarvegi 30, 105 Reykjavík
Sundfélagið Ægir var stofnað þann 1. maí árið 1927. Ægir er stærsta og besta félagið í Reykjavík og hefur átt reglulega fulltrúa á Ólympíuleikum og fjöldann allan af sundmönnum í landsliði SSÍ bæði í fullorðinsflokkum og unglingaflokkum. Auk þess að stunda metnaðarfullt starf fyrir bestu sundmennina þá er unnið með uppbyggjandi skipulag sem hefst í Gullfiskahópum með stigvaxandi kröfum upp í Gullhóp. ÆGIR er keppnisfélag sem stefnir markvisst að afrekum í sundíþróttum. ÆGIR er fyrir sundfólk í úrvalsflokki og þá sem vilja ná góðum árangri og vinna skipulega að markmiðum sínum. Skýr ásetningur, einbeiting og þrautseigja, er sú afstaða sem ÆGIR væntir af hverjum og einum sundmanni. Þessi viðhorf geta af sér meistara í sundíþróttum og í lífsleikni.
Æ - ðislegur,
Síðast uppfært: 29.04.2015. |