Nýtt sundár að hefjast! |
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson |
Þriðjudagur, 30. júlí 2019 08:08 |
Brátt hefst nýtt sundár hjá Ægi og æfingaáætlun er komin hér inn á síðuna. Brons, Silfur og Gull hópar hefja æfingar nú í ágúst en aðrir hópar í september. Æfingar verða ekki fastmótaðar í ágúst og best að fylgjast með vikuáætlunum sem þjálfarar setja inn á facebook síður Brons, Silfur og Gull hópa. Nánari upplýsingar verða gefnar upp um Bleikjur, Laxa og Höfrunga seinna í ágúst. Nú er unnið að því að setja upplýsingar inn í skráningarkerfið og hægt verður að skrá í hópa nú í byrjun ágúst. Við hlökkum til nýs sundárs með ykkur :) Stjórn og þjálfarar. |