Sundfélagið Ægir leitar að sundþjálfurum |
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson |
Þriðjudagur, 04. júní 2019 22:04 |
Sundfélagið Ægir leitar að sundþjálfurum til starfa í yngri hópum félagsins á næsta sundári (næsta vetur). Félagið er með æfingaaðstöðu í Breiðholtslaug og í Laugardalslaug. Um er að ræða viðveru að jafnaði 2-3 virka daga í viku á milli kl. 16 og 19 eða eftir nánara samkomulagi.
Mikilvægt er að viðkomandi hafi reynslu af sundþjálfun. Íþróttafræðimenntun og sérhæfing í sundþjálfun er kostur. Þá þurfa viðkomandi að búa yfir framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, vera skipulagðir og samviskusamir.
Allar upplýsingar gefur Guðmundur Sveinn Hafþórsson yfirþjálfari félagsins í síma 770-4107 og á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . |