Sundfélagið Ægir leitar að sundþjálfurum Prentvæn útgáfa
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson   
Þriðjudagur, 04. júní 2019 22:04

Sundfélagið Ægir leitar að sundþjálfurum til starfa í yngri hópum félagsins á næsta sundári (næsta vetur). Félagið er með æfingaaðstöðu í Breiðholtslaug og í Laugardalslaug. Um er að ræða viðveru að jafnaði 2-3 virka daga í viku á milli kl. 16 og 19 eða eftir nánara samkomulagi.

 

Mikilvægt er að viðkomandi hafi reynslu af sundþjálfun. Íþróttafræðimenntun og sérhæfing í sundþjálfun er kostur. Þá þurfa viðkomandi að búa yfir framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, vera skipulagðir og samviskusamir.

 

Allar upplýsingar gefur Guðmundur Sveinn Hafþórsson yfirþjálfari félagsins í síma 770-4107 og á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .