Á döfinni |
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson |
Sunnudagur, 25. nóvember 2018 19:39 |
Efirfarandi viðburðir eru á döfinni hjá Sundfélaginu Ægi: 1. Jólamót verður haldið 16. desember. Mótið er innafélagsmót og fyrir alla sundmenn félagsins frá Bleikjum og upp í Garpahóp. Mótið verður auglýst sérstaklega. 2. Reykjavíkurmeistamótið verður haldið 11. og 12. janúar 2019. Ægir er framkvæmdaraðili mótsins. 3. Uppskeruhátíð Ægis verður haldin 19. janúar 2019 í Laugarlækjarskóla. 4. RIG 2019 (Reykjavik International Games) verður haldið 25-27 janúar 2019. Ægir er framkvæmdaraðili mótsins ásamt SSÍ.
Það verður því nóg að gera hjá okkur næstu 2 mánuði og vonumst við til þess að fá dygga aðstoð frá foreldrum og sundmönnum. Stjórnin. |