AMÍ 2017 - Starfsfólk vantar |
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson |
Þriðjudagur, 13. júní 2017 09:36 |
Nú styttist óðum í AMÍ og þurfum við á ykkar hjálp að halda til að þetta verði frábært mót. Það eru mörg verk sem þarf að manna. Hér fyrir neðan er krækja á skjal þar sem hægt er að skrá sig á vaktir. Þið finnið nafnið á ykkar sundmanni og vaktina sem þið viljið vinna og skráið nafnið ykkar í reitinn( þess sem vinnur vaktina ). Þeir sundmenn sem synda á AMÍ og eiga fulltrúa sem vinnur 10 tíma eða meira fær 10.000kr afslátt af mótagjaldinu sem er 22.900kr. Þeir sem eiga ekki sundmann á mótinu en vilja aðstoða okkur fá 5.000kr afslátt af æfingagjöldum næsta haust ef unnir eru 5 tímar og 10.000kr afslátt ef unnir eru 10 tímar afslátturinn getur ekki orðið hærri en 10.000kr. Talan fyrir framan nafnið á vaktinni segir til um hversu marga þarf á þessa vakt.
Annað skýrir sig sjálft. Krækja á vaktaskráningarskjal. |