Siðasta Innitvíþraut vetrarsins verður haldin 23. febrúar |
Skrifað af: Rémi |
Föstudagur, 22. febrúar 2013 14:53 |
Fjórða innitvíþraut seríunar verður haldin 23. febrúar kl. 12. Sund: Innilaug Laugardalslaug Hlaup: Hlaupabretti World Class í Laugum Mæting: Matsalur World Class Greiðsla: Á staðnum fyrir keppnina. Skráning: Hér neðar eða á staðnum. Skráningu lýkur 1/2 tíma fyrir keppnina. diagnosis sans-serif; font-size: 10pt;">- Æskilegt er að mæta tímanlega á keppnisstað um klukkan 11:00 og alls ekki síðar en 11:30, það tekur sinn tíma að taka á móti greiðslum, útdeila tímaflögum og merkja fólk. Svo verður auðvita að vera nægur tími til upphitunar. - Upphitun verður í útilaug. - Aðgangur að World Class er innifalinn í keppnisgjaldinu. - Einungis er tekið á móti peningum, enginn posi á staðnum. - Synt verður í 50 m laug og því þarf að synda 10 ferðir. Gert er ráð fyrir ca. 4 - 5 sundmönnum á braut. Talningafólk verður við hverja braut. - Þegar keppendur eru komnir nálægt því að klára 5 km á hlaupabrettinu þurfa þeir að gera mótshöldurum viðvart í tíma, með því að lyfta hendi. - Óheimilt er að hlaupa á hlaupabrettinu ber að ofan. - Ölgerðin skaffar drykki fyrir keppendur. Skráning er <<hér>> Reglurnar fyrir þrautina eru <<hér>> |