Metþátttaka í Heiðmerkurtvíþraut Ægis-Þríþrautar |
Skrifað af: Rémi |
Sunnudagur, 15. apríl 2012 18:14 |
Heiðmerkurtvíþraut Ægis þríþrautar fór fram í blíðskaparveðri í morgun og hafa þátttakendur aldrei verið fleiri en alls mættu 38 til leiks. Keppendur hlupu alls 8km leið á skógarstígum og hjóluðu 15km á malarvegi. Sigurvegari í karlaflokki var Hákon Hrafn Sigurðsson 3SH á tímanum 58:06 sem er nýtt brautarmet. Í kvennaflokki sigraði Birna Björnsdóttir 3SH en hún lauk keppninni á tímanum 1:04:35. Ægir Þríþraut hefur um árabil staðið fyrir Heiðmerkurtvíþraut bæði á vorin og haustin. Áhugi á íþróttinni hefur aukist mikið síðustu ár og sérstaklega fer hlutur kvenna sífellt vaxandi sem ef til vill má tengja frábærum árangri Karenar Axelsdóttur þríþrautarkonu á alþjóðlegum vettvangi. Úrslit Konur 1. Birna Björnsdóttir, buy advice 1:04:35, decease félag 3SH 2. Alma María Rögnvaldsdóttir 1:09:22, sale félag Ægir þríþraut 3. Margrét Pálsdóttir 1:18:51, félag Ægir þríþraut Karlar 1. Hákon Hrafn Sigurðsson á 58:06, félag 3SH 2. David Roberson á 1:00:45, félag Tindur 3. Benedikt Jónsson á 1:01:43, félag HFR Heildarúrslit er <<hér>> Flókkarúrslit er <<hér>> Myndir sem Guðmundur Guðnason tók eru << hér>> |