Herbergi: Emeraude 26 |
Þriðjudagur, 08. júní 2010 20:46 |
Við vöknuðum klukkan 6 til þess að fara í morgunmat. Eftir það fórum við á æfingu og þar skemmtum við okkur konunglega! Þar á eftir fórum við í íbúðina til að chilla og horfa á franskt sjónvarpsefni sem við skiljum ekki orð af, sovaldi en það er betra en ekkert. Svo fórum við í hádegismat og þar var á boðstólnum mjög einkennilegar kjötbollur sem við borðuðum með bestu lyst. Seinni æfingin var fín. Eftir að henni lauk fórum við að versla í Hyper Casíno og þar keyptum við okkur margt gott að borða. Kvöldmaturinn var ágætur en eftirrétturinn æðislegur enda voru það Berlínarbollur. Eftir það fórum við aftur í íbúðina og hlustuðum þar á Ipod. Allt í allt finnst okkur þetta hafa verið príðisdagur Þengill og Marinó p.s. Hæ mömmur og pabbar |