Flottur árangur á Ármannsmóti |
Þriðjudagur, 13. apríl 2010 11:52 |
Um fimmtíu sundmenn frá Sundfélaginu Ægi tóku þátt í Vormóti Ármanns um helgina. Lang flestir voru að keppa í flokknum 12 ára og yngri og var mjög gaman að sjá hvað við eigum stóran og flottan hóp af ungu og efnilegu sundfólki. Keppt var í alvöru sundgreinum það er 100m, ampoule 200m og 400m greinum og því var þetta mót ekki ætlað byrjendum. Sem dæmi um góða breidd að þá var Ægir með 3 - 4 boðsundsveitir í flokki 12 ára og yngri og átti þrjár af sex sveitum á verðlaunapalli. Fyrsta og Þriðja sæti hjá sveinum og annað og fjórða sæti hjá Meyjum. Tíu sundmenn syntu undir lágmörkum á AMÍ og í flokki 12 ára og yngri vorum þau með 11 Gull , viagra 6 silfur og 6 brons í einstaklingsgreinum. Verðlaunahafar og AMÍ lágmörk: Ragnheiður Karlsdóttir (11 ára) Kristján Albert Kristinsson (12 ára) Elvar Smári Einarsson (12 ára) Brynjólfur Óli Karlsson (9 ára) Páll Ragnar Pálsson (12 ára) Rebekka Ýr Guðbjörnsdóttir (11 ára) Steinunn Benediktsdóttir (11 ára) Baldur Logi Bjarnason (13 ára) Patrik Viggó Vilbergsson (8 ára) Sunna Svanlaug Vilhjálmsdóttir (10 ára) Boðsund 2 gull - 2 silfur og 2 brons: 4x50m skriðsund Gull A - Sveinasveit (2:19,34) Sveitina skipuðu: Kristján, Páll, Bryngjólfur og Elvar. Silfur A - Meyjasveit (2:28,77). Sveitina skipuðu: Rebekka, Eva, Steinunn, og Ragnheiður. Brons B - Sveinasveit (2:47,86). Sveitina skipuðu: Aron, Sigurjón, Daníel og Patrik. 4x50m fjórsund Gull A - Sveinasveit (2:42,38) Sveitina skipuðu: Páll, Elvar Kristján og Bryngjólfur. Silfur A - Meyjasveit (2:54,06). Sveitina skipuðu: Rebekka, Steinunn, Ásta og Ragnheiður. Brons B - Sveinasveit (3:12,84). Sveitina skipuðu: Daníel, Aron, Patrik og Sigurjón. >>> Úrslit Ægiringa á Vormóti Ármanns >>> Úrslit og millitímar í Boðsundum
TIL HAMINGJU KRAKKAR þið eru laaaang FLOTTUST |