Úrslit frá Gullmóti KR |
Mánudagur, 13. febrúar 2012 15:04 |
Gull mót KR, pills eitt fjölmennasta mót ársins var haldið um helgina í Laugardalnum. Flottur árangur náðist miðað við æfingaálag undanfarnar vikur. Eygló Ósk Gústafsdóttir setti nýtt Ægis- Stúlknamet í 50m flugsundi og var öðru sæti í „Super Challange“ hásbreidd frá Ingibjörgu K. Jónsdóttir SH sem sigraði. Aðrir sem komust í úrslit í „Super Challange“ voru Marta Buchanevic sem varð í 4.sæti í 12 ára og yngri, pilule Paulina Lazorikova 7.sæti í stúlknaflokki, salve Guðlaug Edda Hannesdóttir í 5.sæti í kvennaflokki og Maríanna Kristjánsdóttir í 6.sæti í kvennaflokki. Í stigakeppni einstaklinga var Eygló Ósk stigahæst í þremur greinum í Stúlknaflokki og í öðru sæti í heildina á öllu mótinu. Rebekka Jaferian var þriðja stighæst í stúlknaflokki. Í Karlaflokki voru bestu afrek mótsins þau að Anton Sveinn McKee var með samalagt flest stig í þremur greinum í Karlaflokki. Hólmsteinn Skorri Hallgrímsson var í öðru sæti í flokki 12 ára og yngri. Margar persónulegar bætingar, AMÍ lágmörk og IM-50 lágmörk náðust um helgina. Nú er bara að halda áfram að vera dugleg að æfa því það styttist óðum í Íslandsmeistaramót (IM-50) og Aldursflokkmeistaramótið (AMI). Úrslit Ægiringa á Gullmóti KR: |