Úrslit frá síðasta stigamótinu |
Sunnudagur, 22. maí 2011 09:58 |
Fimmta og síðasta stigamótið fór fram í gær. Alls mættu tæplega 60 krakkar til leiks og kláruðu fimmta og síðasta stigið. Mótið gekk í alla staði vel og mikið um flotta tíma. Í lokin fengu svo allir þátttakendur verðlaunaskjal fyrir þátttöku á mótinu í vetur og svo voru svo afhent verðlaun fyrir þrjá stigahæstu einstaklingana í 2. og 3. stigi. Stigin eru reiknuð út frá 10 bestu Ægiringum í hnátu/hnokka flokki (2.stig) og Meyja/sveina (3.stig). Markmiðið er að fá sem næst eða yfir 1000 stig. Í 1 stigi eru gefin 100 stig fyrir gilt sund, viagra 50 stig fyrir að klára sund en gera ógilt. Þeir sem gera öll 10 sundin gild geta því fengið 1000 stig. Eftir að hafa lokið 1.stigi er einstaklingur tilbúinn að taka þátt í 2.stigi á næsta ári. Aquasport Sundverslun og umboðsaðili TYR á Íslandi gaf verðlaun fyrir þrjá stighæstu. Að lokum gæddu svo allir sér á ljúfengum Pizzum prá Eldsmiðjunni og drykkjum frá Ölgerðinni. >>> Úrslit frá fimmta stigamóti Ægis >>> Lokastig í 3.stigiStighæstu einstaklingarnir voru. 2.stig Hnátur/Meyjur 2.stig Hnokkar/Sveinar 3.stig Meyjur/Telpur 3.stig Sveinar/Drengir |