Samantekt frá Akranesleikum 2013 |
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson |
Sunnudagur, 09. júní 2013 14:07 |
Það fóru 38 hressir Ægiringar á aldrinum 7-14 ára á Akranesleikana helgina 31.5-2.6 2013. Mörg voru að fara í fyrsta sinn á Akranesleikana og að gista alein í fyrsta sinn. Krakkarnir stóðu sig af stakri prýði, prescription allir voru kurteisir og til fyrirmyndar í skólanum þar sem við gistum. Veðrið setti strik í reikninginn þetta árið en það var rok og rigning nánast allan tímann þannig að þegar þau voru ekki að synda þá fengu þau að bíða inni í íþróttahúsinu. Sólin ákvað hins vegar að heiðra okkur með nærveru sinni síðasta mótshlutann eftir hádegi á sunnudeginum og þá drifu yngri börnin sig í fjöruferð á Langasand með fararstjórum. Einhverjir bættu við sig AMÍ lágmörkum og mörg þessi yngri syntu í fyrsta sinn margar greinar. Ekki var veitt sérstök verðlaun í aldursflokknum 10 ára og yngri en þessir krakkar lentu í sætum. 10 ára og yngri hnátur: Íris Edda Garðarsdóttir 1.sæti í 50 m skriðsundi, 2 sæti í 100 m fjórsundi. 10 ára og yngri hnokkar: Ólafur Breki Guðnason. 1.sæti í 50 m skriðsundi, 1.sæti í 100 m fjórsundi Hringur Birgir Kristinsson. 3.sæti í 50 m skriðsundi, 2.sæti í 100 m fjórsundi. Úlfar Garpur Gunnarsson. 2 sæti í 50 m flugsundi. Boðsund hnokka og hnáta: 4x50 m skriðsund hnokka: 1.sæti. Teitur Þór Ólafsson, Einar Atli Guðnason, Hringur Birgir Kristinsson, Ólafur Breki Guðnason. 3.sæti. Mikael Trausti Viðarsson, Sveinn Elí Helgason, Úlfar Garpur Gunnarsson, Benedikt Ernir Magnússon. 4x50 m fjórsund hnokka: 2.sæti. Teitur Þór Ólafsson, Einar Atli Guðnason, Hringur Birgir Kristinsson, Ólafur Breki Guðnason. 11-12 ára meyjur: Erla María Theodórsdóttir. 2.sæti í 100 m bringusundi 11-12 ára sveinar: Halldór Óskar Eiríksson. 3.sæti í 100 m flugsundi. Halldór Björn Kristinsson, 3.sæti 100 m baksund. 13-14 ára: Hafsteinn Ari Ágústsson. 3.sæti í 100 m baksundi, 3.sæti í 200 m skriðsundi, 3.sæti í 1500 m skriðsundi.
Sjá hér skemmtilegar myndir frá Akranesleikum 2013
Takk fyrir frábæra helgi krakkar Kv. Sigrún, Guðni og Margrét fararstjórar. |