Úrslit frá Jóla og Stigamóti Ægis 2010 |
Laugardagur, 11. desember 2010 23:25 |
Jóla og Stigamót Ægis fór fram í morgun í Laugardalslaug. Alls mættu um 120 krakkar á svæðið auk foreldra og aðstandenda. Jólamótið var að þessu sinni einnig 2.hluti af stigamóti Ægis þar sem keppt er í tveimur greinum í mismunandi stigum eftir getu og aldri. Stóru krakkarnir í Gull og Silfur-Eldri syntu allar 50m greinarnar. Svo sýndu nokkrar bleikjur okkur hvað þær haf lært í vetur en einnig verður sér bleikjusýning fyrir Bleikjuhópa í Breiðholti í næstu viku. Mótið heppnaðist í alla staði vel og er gaman að sjá hvað við eigum marga unga og efnilega sundmenn hjá félaginu sem eftir nokkur ár verða fulltrúar okkar á alþjóðavettvangi líkt og okkar bestu sundmenn í dag. Það er ekkert voðalega langt síðan Eygló og Anton voru í ykkar sporum og í dag eru þau að gera það gott á Norðurlandamóti Unglinga. Stekkjastaur kíkti í heimsókn og tók nokkra vel valda jólaslagara á gítarinn við góðar undirteknir. Allir fengu ljúffeng jólaepli að launum. Einnig kíktu Sjóvarpið í heimsókn og tók nokkur viðtöl við krakkana okkar. Fyrir þá sem misstu af Fréttatímanum í kvöld þá getið farið á ruv.is og fært stikna að 23:50 og séð fréttina. Viljum við þakka öllum þeim sem tóku þátt kærlega fyrir þátttökuna og einnig þeim foreldrum sem mættu sem dómarar og stafsmenn. ÁFRAM ÆGIR |