Uppskeruhátíð Sundfélagsins Ægis fyrir árið 2023 |
Skrifað af: Ingigerður |
Sunnudagur, 18. febrúar 2024 20:06 |
Uppskeruhátíð Sundfélagsins Ægis fyrir árið 2023 verður haldin laugardaginn 24. febrúar nk. í sal hjá Wurth á Íslandi, Norðlingabraut 8. Hátíðin hefst kl. 12:30 og henni lýkur um kl. 14:00. Þar veitum við verðlaun fyrir góðan árangur ársins 2023 og eigum góða stund saman. Eins og áður verður þetta Pálínuboð, það koma allir með eitthvað með sér á hlaðborð og Sundfélagið sér um drykki með. Við hvetjum alla Ægiringa að mæta og taka þátt í þessu með okkur. Dagskráin verður með hefðbundnu sniði:
Til að hljóta viðurkenningu þarf sundmaður að hafa verið skráður í Sundfélagið Ægi í lok árs 2023. Stjórn og þjálfarar. |