Dómaranámskeið |
Sunnudagur, 26. september 2010 09:10 |
Í tengslum við TYR mót Ægis dagana 1.-3. október heldur Sundfélagið Ægir í samvinnu við SSÍ dómaranámskeið í Sundmiðstöðinni í Laugardal 2. hæð. Leiðbeinandi verður Gústaf Adolf Hjaltason formaður Sundfélagsins Ægis. Bóklega kennsla fer fram fimmtudaginn 30. september klukkan 18-22. Það er von okkar að sem flestir foreldrar sjái sér fært að taka þátt í sundiðkun barnanna okkar með því að bætast í dómarahóp félagsins og tryggja þar með að hópurinn nái aftur eðlilegri stærð. Skráningar og fyrirspurnir sendist á Gunnlaug Þráinsson Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða í 856-2723 |