Reykjavíkurmeistaramót 2024 |
Skrifað af: Ingigerður |
Sunnudagur, 14. janúar 2024 11:10 |
Reykjavíkurneistaramót SRR fór fram um helgina í Laugardalslaug. Það er óhætt að segja að árið byrjar vel hjá okkur en á mótinu unnum við 69 Reykjavíkurmeistaratitla, áttum fimm af stigahæsta sundfólkinu og sundmaður Reykjavíkur árið 2023 er Stefán Ingi Ólafsson. Á myndinni má sjá alla stigahæstu sundmenn mótsins. Að auki unnum við 55 silfurverðlaun og 31 bronsverðlaun sem gera 155 verðlaun í heildina! Þvílíkur dugnaður í okkar fólki! Reykjavíkurmeistaramótið er stigamót milli liðanna í Reykjavík og var Ægir í harðri baráttu við Ármann um titilinn en þeir höfðu betur að lokum. Frábært mót og meiriháttar stemning í hópnum. Framtíðin er sannarlega björt hjá okkur í Sundfélaginu Ægi. |