Allar æfingar falla niður þar annað verður ákveðið Prentvæn útgáfa
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson   
Fimmtudagur, 08. október 2020 18:37

Allar æfingar hjá Sundfélaginu Ægi falla niður þar til annað verður ákveðið. Þar með er félagið að verða við tilmælum ÍSÍ, SSÍ og sóttvarnaryfirvalda vegna COVID faraldursins. Félagið hvetur sundmenn til að hreyfa sig og stunda heimaæfingar og munu þjálfarar leitast við að halda úti æfingaáætlun og halda sambandi við sundmenn. Gangi ykkur vel!

Stjórn og þjálfarar.