Gullfiskanámskeið, 2. maí - 6. júní |
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson |
Mánudagur, 22. apríl 2019 21:19 |
Síðasta Gullfiskanámskeið sundársins verður haldið frá 2. maí til 6. júní nk í innilaug Breiðholtslaugar.
Boðið verður upp á þrjá hópa, þriðjudaga og fimmtudaga eins og verið hefur. Hóparnir er getuskiptir og verða á eftirfarandi tímum: Breiðholt 1 - Byrjendur - vor - stutt: kl. 16:45 - 17:15 Breiðholt 2 - Framhald - vor - stutt: kl. 17:20 - 17:50 Breiðholt 3 - Framhald - vor - stutt: kl. 17:55 - 18:25
Búið er að opna fyrir skráningar á skráningarvef félagsins (sjá hér vinstra megin) á síðunni. Verð námskeiðs er kr. 9.800. Því miður nýtist frístundastyrkur Reykjavíkurborgar ekki fyrir þetta námskeið vegna þess að það er með tímalengd undir viðmiði borgarinnar. Þjálfarar. |