Aðalfundur Sundfélagsins Ægis 2019 |
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson |
Mánudagur, 18. mars 2019 19:57 |
Aðalfundur Sundfélagsins Ægis v/starfsársins 2018 verður haldinn miðvikudaginn 27. mars nk. kl. 20:00 á efri hæð Laugardalslaugar. Kosið er til formanns á fundinum og í laus stjórnarsæti. Framboð til formanns og stjórnar skal tilkynna fyrir fundinn á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , eða á fundinum sjálfum undir viðkomandi lið. Lög og markmið Ægis má finna á heimasíðu félagsins. Tillögur um breytingar á lögum skulu berast formanni á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. minnst þremur dögum fyrir fundinn. Auk sundþjálfunar byggir starfsemi Ægis alfarið á vinnuframlagi foreldra og velunnara þess. Þar með talið eru stjórnarstörf, tæknistörf, dómgæslu og vinnu í foreldraráði.
Foreldrar og aðrir þeir sem vilja gefa kost á sér í fyrrgreind störf vinsamlegast sendið tölvupóst á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
. |