Jólamót Ægis 2018 |
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson |
Þriðjudagur, 27. nóvember 2018 21:09 |
******BREYTING****** Jólamót Ægis verður haldið LAUGARDAGINN 15. DESEMBER í Laugardalslaug fyrir þátttakendur allt frá Bleikjum og upp í Garpa. Mótið er tvískipt og hefst með 800 og 1500 metra skriðsundi hjá eldri hópum en síðan er farið í styttri greinar. Dagskrá mótsins er sem hér segir: Fyrri hluti:
Seinni hluti:
Rafræn tímataka og dómgæsla verður á mótinu.
Þetta er stórskemmtilegt innanfélagsmót þar sem flestir sundhópar taka þátt og börn í yngstu hópunum fá að taka þátt í sínu fyrsta sundmóti. Þátttakendur verða úr Bleikjum, Löxum, Höfrungum, Brons, Silfur og Gull hópum. Foreldarar taka þátt í mótshaldinu með því að hjálpa til við tímatöku.
Þjálfarar ræða við sundmenn um þátttöku og greinar og senda skilaboð til foreldra.
|