Við minnum á uppskeruhátíðina á laugardag Prentvæn útgáfa
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson   
Miðvikudagur, 11. apríl 2018 16:39

Uppskeruhátíð Sundfélagsins Ægis fyrir árið 2017 verður haldin laugardaginn 14. apríl í Laugalækjarskóla.

Hátíðin hefst kl. 12:30 og henni líkur um kl. 14:30. Hátíðin er fyrir sundmenn félagsins og aðstandendur þeirra, allt frá Bleikjum og upp í Gullhóp.

 

Að venju óskum við eftir stuðningi frá foreldrum til að koma með veitingar á sameiginlegt hlaðborð. Ægir leggur til kaffi og aðra drykki.

 

Stjórnin.