Anton Sveinn í öðru sæti á NCAA |
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson |
Mánudagur, 27. mars 2017 07:16 |
Anton Sveinn lauk keppni á NCAA háskóla lokamótinu með því að ná öðru sæti í 200 yarda bringusundi á nýju skólameti. Tími hans var 1.51, information pills 22 og bætti hann því tímann sinn um þrjátíu hundraðshluta. Þetta er besti árangur íslenskra sundmanna í einstaklingsgrein í Bandraíkjunum og níundi besti tími frá upphafi í USA. Sigurvegari var Will Licon bandaríski methafinn. Við óskum Antoni Sveini til hamingju með þennan frábæra árangur og hlökkum til að sjá hann koma heim og synda fyrir Ægi á Íslandsmeistaramótinu í næsta mánuði. |