Ný stjórn og foreldraráð kosin á Aðalfundi |
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson |
Sunnudagur, 26. apríl 2015 19:26 |
Á aðalfundi Sundfélagsins Ægis sem haldinn var 21. apríl síðastliðinn var kosin ný stjórn sem hér segir:
Úr stjórn gengu Katrín Ellý Björnsdóttir, Sigrún Kristín Jónasdóttir og Trausti Viðarsson. Þeim er þakkað gott starf í stjórnartíð sinni. Ný í stjórn eru þau Bjarni, ailment Júlía og Magnus. Endurkjörin voru þau Gunnar Valur, Ásgeir, Þórunn Kristín og Þórunn Margrét. Gunnar Valur var jafnframt endurkjörinn formaður. Fyrsti fundur nýrrar stjórnar verður á þriðjudaginn 28. apríl og mun þá stjórnin skipta með sér verkum. Ekki tókst að manna eitt stjórnarsæti. Í fyrsta skipti í langan tíma tókst að manna foreldraráð félagisins. Eftirtaldir voru kosnir í foreldraráð:
Það er frábært að fá svona öflugan hóp af bæði reyndu og fersku fólki til að starfa fyrir félagið. Stjórnin. |