Aðalfundur Sundfélagsins Ægis, 21. apríl |
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson |
Mánudagur, 13. apríl 2015 07:15 |
Aðalfundur Sundfélagsins Ægis verður haldinn þriðjudaginn 21. apríl kl. 20:00 á efri hæð Laugardalslaugar. Auk sundþjálfunar byggir starfsemi Ægis alfarið á vinnuframlagi foreldra og velunnara þess. Sundfélagið Ægir leitar sífellt að fólki sem er reiðubúið til að taka að sér stjórnarstörf, tæknistörf, dómgæslu og vinnu í foreldraráði. Vinna í foreldraráði felur m.a. í sér fararstjórn í æfingaferðum, umsjá fjáröflunar og að halda utan um sundhópa, t.d. félagslega. Leitað er að tveimur einstaklingum fyrir hvern sundhóp félagsins til að taka að sér störf í foreldraráði. Árlega eru auglýst dómaranámskeið sem gefa réttindi til dómgæslu á sundmótum. Foreldrar eru hvattir til að sækja þau og í framhaldinu að dæma fyrir félagið. |