Jóhanna Gerða í góðum gír |
Skrifað af: Kristrún |
Sunnudagur, 22. febrúar 2015 18:22 |
viagra 'Lucida sans', Trebuchet, Verdana, Helvetica, Arial, sans-serif; font-size: 12.996000289917px; line-height: 18px; vertical-align: baseline; color: #2f2f2f;">Jóhanna Gerða Gústafsdóttir sundkona úr Sundfélaginu Ægi var að keppa á sínu síðasta deildarmóti í Bandaríkjunum C-USA Conference um helgina og stóð sig vel. Hún var kosin sundmaður mótsins nú á loka árinu sínu en hún fékk einnig þann titil á sínu fyrsta ári þá í deild sem kallaðist Sun Belt Conference. Hún keppir fyrir FIU(Florida International University). 7 skólar kepptu og var aðal keppnin á milli RICE – Western Kentucky og FIU og stóðFIU uppi sem sigurvegari, en þetta er í fyrsta skipti sem skólinn vinnur deildarmeistaratitilinn. Jóhanna Gerða sigraði allar greinarnar sínar en sundmaður má synda þrjár einstaklingsgreinar og vera þrisvar sinnum í boðsundsliði. Hún setti tvö mótsmet og fjögur skólamet þar af tvö í einstaklingsgreinum.
Á ferlinum í Bandaríkjunum hefur Jóhanna Gerða unnið 11 einstaklingsgreinar á deildarmótum og 3 í boðsundum. Hún mun svo taka þátt í NCAA, sem er stærsta háskólamót í USA, en þetta er fjórða árið í röð sem hún nær lágmörkum á mótið. Jóhanna Gerða var að því komin að hætta sundiðkun fyrir nokkrum árum en þennan texta setti hún inn á facebooksíðuna sína fyrir nokkru: "6 years ago, I decided to put to rest my cap and goggles. After 2 years of being out of the water and being unhappy in my own skin, I took the biggest decision of my life, to move across the world and get back into the sport I had always loved. I have without a doubt had one of the most successful college career a swimmer can ask for, every year I have improved in the pool and every year grown more as a person. As a team we just wrote history. First ever swimming&diving championship and first ever #CUSA championship title for #FIU I have never been so proud to be a #GoldenPanther. Hér fyrir neðan eru nokkrir skemmtilegir hlekkir á efni sem tengist Jóhönnu Gerðu. |