Alexander Dale Oen borinn til grafar í dag |
|
Föstudagur, 11. maí 2012 11:34 |
Heimsmeistarinn í bringusundi, prescription Alexander Dale Oen og vinur okkar Ægiringa sem lést 30. apríl síðastliðinn er borinn til grafar í dag. Alex var oft hér á Íslandi við æfingar og tók þátt í Reykjavik International Games (RIG). Hann átti marga góða vini hér á landi og var vinur og æfingafélagi Jakobs Jóhanns Sveinssonar sem hefur fylgt Alex í æfingabúðir norska landsliðsins. Við Ægiringar sendum innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldu og vina Alexanders. Ægiringarnir Jakob Jóhann, cialis Jón Símon og Oddur eru í dag meðal vina Alexanders, viðstaddir útförina. Alex verður alltaf í hugum okkar og munum við hugsa um áræðni og keppnisskap hans í okkar verkefnum. Blítt viðmót hans og gleðilegt bros mun fylgja okkur alla tíð. Hvíl í friði kæri vinur.
|